Vetraferðamennskan á Íslandi er hreint kraftaverk og alger unun að fylgajst með. Reyndar er ekki vetrarferðamennska nema frá Reykjavík og Reykjanesi um allt Suðurland og svo um hluta Vesturlands.
Í byrjun mars dvaldi ég tvær nætur í Stykkishólmi, sem hefur með árunum alltaf orðið mér kærari og kærari. Reyndar dvel ég orðið alltaf þar einhverjar helgar á hverju ári. Kunningjar mínir þar segja að í vetur hafi í fyrsta skipti verið þar bullandi vetrarumferð. Við Gugga skruppum í bílferð í góðu veðri í kringum Jökul. Á vegi okkar urðu fjölmargir ferðamenn og allstaðar var vel staðið að allri aðstöðu til að skoða og labba. Hreint til fyrirmyndar og gaman að sjá hversu við Íslendingar erum duglegir að taka á móti þessu fólki, sem margt kemur yfir þvera veröldina (Kínverjar og Kóreubúar) til þess eins að fá að upplifa Ísland. Hjón nokkur eru meðal þessara Íslendinga og ákváðu að setja upp vagn sem selur fisk og franskar á Arnarstapa. Ekki í frásögu færandi nema þau hafa opið allan veturinn, hvernig sem viðrar. Ekkert skjól fyrir regni/sjókomu né vindum til að borða. Mjög opið fyrir hafi og suðvestan hryðjum, sem erfitt er að sjá fyrir sér að gott sé að borða mat í. Aðstaðan, bara berir trébekkir. Hjónin lána reyndar teppi sem fólk getur vafið sig inní. Í viðtali við fréttamann nýverið sögðu þau að í allan vetur hafi verið nóg að gera. Magnað ! Læt fylgja með mynd sem ég tók af þessu frábæra fyrirbæri.
0 Comments
Þegar allar þessar milljónir ferðamanna hafa heimsótt landið okkar fagra undanfarin ár; smá safnast upp ferðasögur þeirra á netinu. Sumar eru birtar í myndum, aðrar í textum og svo ennaðrar í kvikmyndaformi. Þetta er orðinn heill hellingur - sem gerir lítið annað en að auglýsa landið okkar enn meira og betur. Það er bráðskemmtilegt að skoða þetta efni og sjá hvernig ferðamennirnir upplifa landið; hvað þeir skoða og hvað þeir segja. Sérstaklega hefur mér þótt merkilegt að fólk skuli koma hér á veturnar. Hér að neðan er stutt ferðasaga ferðalanga sem heimsækja landið í skamdeginu. Áhugavert. Eitt af því sem mér þykir gaman að gera er að skanna inn gamlar myndir og laga þær til. Hér að neðan er dæmi um fyrir og eftir. Tveir drengir og tveir hundar. Spurningin er hverjir eru á myndinni ?
Anna Björg Ingadóttir heitir kona ein sem hefur undanfarin ár ferðast um Reykhólahrepp og tekið upp myndbönd með viðtölum við íbúa. Hún tekur viðtöl bæði við unga og aldna um allan hreppinn. Myndböndin eru orðin ansi mörg og hafa að geyma ýmsan fróðleik en þó má segja að þau spegli í raun mun frekar samtímann. Afar skemmtilegt og menningarlegt framtak hjá Önnu. Myndböndin eru öll á youtube og hér er slóðin að heimasíðu hennar þar sem myndböndin eru geymd. Og svo að neðan eitt viðtalið: Nú í sumar rætist sá draumur minn að komast til Asoreyja. Við hjónin munum fljúgja þangað í júlí frá Danmörku. Ekki fannst ferðaskrifstofa á Íslandi með ferðir þangað. Á Asoreyjum er fagurt, friðsælt og hæfilega hlýtt. Virk eldfjöll, hraun, gígar, jarðhiti og fleira sem minnir á Ísland. En miklu meiri gróður. Myndir hér. Um eitt til fimm prósent þeirra sem leggjast inn á spítala vegna hjartaáfalls eru ekki með kransæðastíflu heldur hjartabilun sem verður í kjölfar andlegs eða líkamlegs áfalls. Þetta sýnir að það er hægt að deyja úr harmi. Lítið er vitað um orsakir bilunarinnar eða hvers vegna hún er algengari hjá konum en körlum. Ástin og sorgin. Í heimi skáldskaparins og í daglegu tali manna á milli eru þessar tilfinningar oft tengdar hjartanu. Þessum hnefastóra vöðva sem dælir blóði til allra vefja líkamans. Hversu mikil áhrif hafa þessar tilfinningar á hjartað í raun? Það er óljóst.
Í gegnum söguna og fram á okkar daga er þetta að gerast: Þegar örin hitti Baldur lést hann samstundis. Öll goðin urðu harmi slegin því enginn hafði átt von á því að hann myndi deyja. Lík Baldurs var lagt á útfaraköst mikinn sem byggður var á skipi hans, Hringhorna, en þegar Nanna kona hans sá hann látinn sprakk hún sjálf af harmi. Hún var því lögð við hlið hans. Nanna er ekki sú eina sem sögð er hafa sprungið úr harmi. Það gerði líka Hrefna í Laxdælu eftir að Kjartan maður hennar lést. Talið er að allt að 1 - 5% þeirra sem fá hjartaáfall, séu að deyja vegna tilfinninga tengdra áfalla. Í dag ákvað ég að ryksuga bílinn og þvo að innan. Ég var á peysunni í 10 stiga hita og logni. Tíðin er eiginlega orðin alveg einstök og fátt sem minnir á veturinn nema myrkrið. Það heldur áfram að vaxa nokkra daga í viðbót.
Í garðinum hjá mér má finna þrjár blómstrandi plöntur. Þær lifðu greinilega af eina frostakaflann sem kom hér á Selfossi í haust. Myrkrið er líklegra til að drepa þær en frostið. Sjálfkeyrandi bílar eru handan við hornið og munu sem slíkir stórauka öryggi og skilvirkni í umferð. Þetta eru sannarlega góðar fréttir. Sjá : http://www.ruv.is/frett/sjalfkeyrandi-bilar-eru-handan-vid-hornid
Í fjölmiðlum upp á síðkastið hefur verið fjallað um mögulega sölu sveitarstjórnar Dalabyggðar á húsakosti Lauga í Sælingsdal. Gert er ráð fyrir sölunni í fjárhagsáætlun sveitarfélagsins fyrir árin 2016-2019. UMFÍ hefur um árabil rekið vinsælar Ungmenna- og tómstundabúðir að Laugum yfir skólaárið sem nemendur í 9. bekk víða að landinu sækja. Leigusamningur er í gildi á milli UMFÍ og Dalabyggðar til ársins 2019. Gangi salan eftir stendur ekki til að rifta samningnum. Rekstur Ungmenna- og tómstundabúða UMFÍ er því tryggður í nokkur ár.
Stefnt hefur verið að sölu Lauga um árabil eða frá því því sveitarstjórn Dalabyggðar keypti fasteignirnar af ríkinu árið 2013. Sveinn Pálsson, sveitarstjóri Dalabyggðar, segir fasteignirnar ekki verða seldar hverjum sem er. Neðri-Brunná • • --
Stórholt— • Litla-Holt— — — • • Ólafsdalur• — -- Skuld *• — • • Lindarholt• • — — -- Efri-Brunná— • • • Brunná Eyjólfs— — • • • Jaðar• • • — -- Eyrarland— — — — • Skriðuland• • — • Ljósaland— • • • • Máskelda• • • • Hvoll• — • -- Hvítidalur Torfa— • -- Hvítidalur Sigurðar— • — -- Fremri-Brekka Lárusar— -- Fremri-Brekka Guðjóns• • • • -- Neðri-Brekka Bersatunga• -- Litli-Múli— • — • Efri-Múli *• — • • Stóri-Múli• • Ármúli• Þurranes— — -- Staðarhóll— — • Mikligarður• — • Ársel, veiðihús— — — • Kverngrjót• — — -- Þverfell— — • -- Þverdalur• — — • Kjarlaksvellir— • • -- Grund • • — • • Kot— — — • Hvammsdalur Lambanes• • — • -- Saurhóll• • • -- Ásar• • • Tjaldanes, Sig. Lár.— • • Tjaldanes, Kristinn-- Tjaldanes, Magnús Á.— — • • Foss— — — -- Innri-Fagridalur— • • • -- Fagradalstunga Tjarnarlundur— — — — -- Fóðuriðjan— — — — — -- Neyðarhringing• • • • • |
Myndirnar mínarEldri innlegg
July 2019
Slóð á straum |