Um eitt til fimm prósent þeirra sem leggjast inn á spítala vegna hjartaáfalls eru ekki með kransæðastíflu heldur hjartabilun sem verður í kjölfar andlegs eða líkamlegs áfalls. Þetta sýnir að það er hægt að deyja úr harmi. Lítið er vitað um orsakir bilunarinnar eða hvers vegna hún er algengari hjá konum en körlum. Ástin og sorgin. Í heimi skáldskaparins og í daglegu tali manna á milli eru þessar tilfinningar oft tengdar hjartanu. Þessum hnefastóra vöðva sem dælir blóði til allra vefja líkamans. Hversu mikil áhrif hafa þessar tilfinningar á hjartað í raun? Það er óljóst.
Í gegnum söguna og fram á okkar daga er þetta að gerast: Þegar örin hitti Baldur lést hann samstundis. Öll goðin urðu harmi slegin því enginn hafði átt von á því að hann myndi deyja. Lík Baldurs var lagt á útfaraköst mikinn sem byggður var á skipi hans, Hringhorna, en þegar Nanna kona hans sá hann látinn sprakk hún sjálf af harmi. Hún var því lögð við hlið hans. Nanna er ekki sú eina sem sögð er hafa sprungið úr harmi. Það gerði líka Hrefna í Laxdælu eftir að Kjartan maður hennar lést. Talið er að allt að 1 - 5% þeirra sem fá hjartaáfall, séu að deyja vegna tilfinninga tengdra áfalla.
0 Comments
Leave a Reply. |
Myndirnar mínarEldri innlegg
July 2019
Slóð á straum |