Var að koma heim af áramótabrennu hér í Búðardal. Veðrið er bara fínt og það mætti fullt fullt af fólki. Miklu fleiri en ég átti von á og komu sumir um langan veg. Flugeldasýningin var alveg ágæt. Ég hef aldrei verið hér áður um áramót en reynslan er fín. Nú er bara að taka því rólega næstu klukkustundir þangað til maður getur fagnað nýju ári. Árinu 2014. Hugsa sér...hvað ég eldist. Áramótin eru sannarlega staðfesting þess að tíminn líður. Áminning til okkar um að telja daga vora og nýta þá vel. Ég óska öllum gleðilegs nýs árs með þökkum fyrir innlitin á síðuna mína. Eyjólfur
0 Comments
Ég heyrði í morgun auglýsingu þar sem verið var að auglýsa Macintosh. Það sem sló mig var að notað var orðið "Macintosh" en ekki "Quality Street" sem sælgætið heitir í dag. "Voðalega eru nú Íslendingar nú fastheldnir" hugsaði ég og velti fyrir mér afhverju þjóðin gæti ekki lært að kalla þetta uppáhalds jólanammi sitt " Quality Street". En þegar ég fór að skoða þetta betur ... þá erum við ekki ein. Norðmenn kalla þetta nammi sitt gjarnan "Shetlandsgodt" vegna þess að sjómenn komu oft með það frá Hjaltlandseyjum þegar þeir sneru heim. Og Írarnir kalla þetta nammi ekki annað en "Macintosh". Eins og við. Það var árið 1988 sem Nestle keypti fyrirtækið Rowntree Mackintosh í Englandi og breytti framleiðslunni og nafninu. Þannig að það eru komin 25 ár frá breytingunni. Ég efast um að það verði kallað annað hér á landi úr þessu. Það er gaman að fylgjast með samkeppninni á markaði myndvinnslutóla fyrir tölvur. Samkvæmt könnunum hefur Adobe verið að tapa markaðshlutdeild smátt og smátt eins og sjá má hér. Engu að síður er fyrirtækið með mikla yfirburði á þessum markaði. Þegar hinsvegar er skoðað niðurhal t.d. á vefnum download.cnet.com sést hversu frítólin tvö; Photo Scape og Gimp hafa góða stöðu. Þetta eru ólík tól; PhotoScape er frekar einfallt kröftugt tól til að vinna ljósmyndir meðan Gimp er fyrir flóknari og nákvæmari vinnu, sköpun og breytingar í allri myndvinnslu. Bæði tólin eru fáanleg fyrir MAC og Windows. Svona líta teljarirnir á niðurhali út hjá Cnet þann 14.12.2013.
Windows MAC Samtals PhotoScape 44.449.826 10.211 44.460.037 Gimp 3.623.306 442.231 4.065.537 Photoshop 1.221.563 4.476.651 5.698.214 Ég er náttúrulega himinlifandi yfir þessu, því þetta eru þau tvö myndvinnsluforrit sem ég nota mest. Gimp er þar að auki langmest notaða myndvinnslutólið í lynux stýrikerfinu, en yfir það er ekki gott að finna opinbergar tölur um niðurhal en eflaust færir það Gimp upp að hlið Photoshop. En lang, lang vinsælasta myndvinnsluforitið þessa dagana er samt bara til fyrir Windows og heitir IrfanView. Forritið hefur verið halað niður 70.000.000 sinnum á Cnet !! Rakst á þessa mögnuðu myndasýningu frá Norður Kóreu. Þetta eru myndir teknar 2013 og hverri mynd fylgir skýring ljósmyndarans, sem var ferðamaður í landinu.
http://www.dominik-schwarz.net/reisen/nordkorea2013/ Að hafa mikla þörf fyrir viðurkenningu,
verða miður sín ef maður fær ekki viðurkenningu eða fá vanþóknun annarra að launum, jafngildir því að segja við viðkomandi: Álit þitt á mér er mikilvægara en álit mitt á sjálfum mér. |
Myndirnar mínarEldri innlegg
July 2019
Slóð á straum |