Í sumar hefur veðrið verið nokkuð margir kaldir og blautir dagar hér í Búðardal. Þá er nú notarlegt að setjast að fyrir framan tölvuna og æfa sig í myndvinnslu. Ég nota Gimp, sem er ókeypis og býsna öflugt myndvinnslutól. Ég er búinn að vera lengi á þessari leið. Prufa og gefast upp og ætla eitthvað annað. En eftir að ég ákvað að vera með linux Ubuntu í tölvunni var ekki aftur snúið . Gimp varð það að vera. Myndin hér að ofan er sannarlega lík upprunalegu myndinni en mikið breytt. Þetta er ótrúlega skemmtileg iðja. Slær eiginlega sjálfa myndatökuna út. En tímafrekt með afbrigðum. Það er dagsvinna í myndinni hér að ofan... en ég er líka óvanur :)
0 Comments
Myndin er tekin af þaki hótelsins okkar yfir nærliggjandi ólífuakur. Á Plantanias eru öll hótel lágreist og standa í bland við akra og annan landbúnað. Stígarnir og göturnar hlykkjast á milli. Þetta yfirbragð gerir það að verkum að svæðið er hálf sveitarlegt með rólegu andrúmslofti. Ætli við getum ekki sagt að það sé fjölskylduvænt. Ekki ein einasta verslun á svæðinu er stór; allar fremur litlar og sægur af þeim. Næstum allir ferðamennirnir á þessum hótelum voru Skandinavar. Sem gerði dvölinina enn betri. Nú er myndavefurinn Flickr kominn með nýtt viðmót og breytta ásýnd. Ég er eiginlega soldið týndur í nýja kerfinu. En ég er búinn að setja inn nokkrar myndir frá fermingunni hans Rikka og það er um að gera að prófa vefinn. Slóðin hér. Myndirnar sem núna hafa verið settar inn á Flickr eru úr ýmsum áttum og frá ýmsum tíma. Elstu myndirnar eru frá því fyrir 1970 og yngsta myndin er frá 1984. Slóðin hér: http://www.flickr.com/photos/guggaogloi/ Þessi mynd er tekin við ákveðið tilefni. Þetta er árið 1980 á ári trésins. Þetta vor suðaði ég í pabba og mömmu um að gerður yrði garður fyrir aftan húsið okkar á Efri Brunná... og kannski afþví að það var átak í trjárækt (ár trésins)... eða að mömmu leist svona vel á þetta...þá samþykktu þau það að lokum. Ég varð ákaflega glaður. Ég hóf undirbúning; mældi út fyrir plöntum, pantaði plöntur, dreifði skít og tætti upp trjábeð. Ég lá í bókum og blöðum um skóg- og garðrækt. Svo var farið í að setja niður. Ég fékk til liðs við mig yngri systur mínar og hér á myndinni er búið að hola niður fyrstu plöntunni; brekkuvíði. Prikið sem Helga heldur á var mælieiningin milli plantnanna. Það kom á daginn að ég hafði það of stutt....plönturnar dugðu ekki á allt svæðið. Þetta sumar og tvö þau næstu annaðist ég trjárækt í garðinum og plönturnar uxu flestar vel. En þessi garðagerð átti eftir að draga dilk á eftir sér svo um munaði. Það kom að því að ég var ekki til taks lengur á sumrin til að annast garðinn. Mamma tók við því hlutverki og garðurinn óx og dafnaði sem aldrei fyrr. Og áður en mamma og pabbi hættu að búa höfðu þau búið til annan garð á Brunná (bláa húsið) og tekið nokkra hektara lands frá beit og sett undir skógrækt. Og frá því að jörðin var seld hafa pabbi og mamma annast tvo garða; Brunná og á Alftanesinu. Sumarlangt eru þau að strita í görðum sínum og mamma þó sínu meira. Garðarnir eru alltaf snyrtilegir og trjávöxtur mjög fallegur. Áður en ég hóf garðagerðina 1980 hafði ég aldrei séð mömmu í garðavinnu nema að taka upp kartöflur og skera rababara. Pabbi tætti kartöflugarðinn og ræktaði fóðurkál. Svo sannarlega var ár trésins örlagavaldur í fjölskyldunni. Ég hugsjónarmaðurinn er þó í dag varla meira en miðlungs garðyrkjumaður. Þessi mynd var vel merkt 1971. Ég og Sigga komin á kaf í fóðurbætispoka á bæjarhlaðinu. Ég man eftir þessum pokum; þeir voru vel þykkir (held að þeir hafi verið grænir). Ég man einnig eftir að hafa leikið mér í þeim....hafa farið ofan í þá og hoppað um. Man að það var erftitt að koma þeim uppfyrir herðarnar og standa upp ef maður féll. Tómum pokum var safnað saman í fjósinu eða mjólkurhúsinu og mynduðu þeir mjúka dyngju þegar hrúgan hækkaði. Þeir svo brenndir reglulega og varð nokkuð bál af því þetta var eldmatur góður. Ég man þó ekki eftir þessari myndatöku enda bara fimm ára. Reikna með að mamma hafi tekið myndina og sennilega hjálpað okkur í pokana. Nú hef ég sett inn á Flicr myndasvæðið mitt rúmlega 20 myndir. Þær eru frá því miðjum ágúst og fram yfir jól. Ég hef ekki tekið myndavélina með mér í neina göngu í sumar. Myndavélin er oft í bílnum á ferðum en ekkert notuð. (Er ég að þorna upp ?) Ég á nokkrar myndir á símanum góða, frá einni göngu og fleiri uppákomum, sem ég þarf að koma inn. Því verður að segjast að duglegur hef ég ekki verið í myndatökunni hvað þetta varðar. Hinsvegar tek ég reglulega myndir af fjölskyldunni og fæ líka reglulega lánaðar myndir frá Birnu minni. Hún tekur góðar myndir. Kannski næsta ár verði meira ljósmynda ár ! Hér er slóðin á myndirnar: Á Flickr var ég búinn að birta þessa mynd, en kunni ekki mikil né góð skil á öllum á myndinni. Stebbi föðurbróðir sendi mér eftirfarandi línur til útskýringar: Lengst til vinstri er Kári. fyrir framan hann er kona hans Margrét systir pabba og barn þeirra. Magga og Kári höfðu með sér hjón sem ég kann ekki nöfnin á trúlega mágur Kára. Það mágurinn sem tekur myndina. Ragnheiður Konráðsdóttir er í fremri röð og Erlingur Gísli Gíslason stendur þar á sínum 13 ára löppum. Hann varð seinna leikari. Hundurinn heitir Hitler og var nokkrum árum eldri en ég. Stebbi Linnet gaf honum nafnið. Marsibil á Sunnuhvoli skammaði pabba sagði að Hitler hefði bitið enhvern í fjölskildu hennar. Hitler átti það til að bíta fólk sem honum líkaði ekki við en ekki hættulega. Pabbi gerði vísu um þetta: Að hægt sé að villa hundi sýn hef ég litla von um. Þó Hitler glefsi í svona svín síst er galli á honum. Myndin er tekin 1946; fyrsta sumarið á Brunná. Takk fyrir þetta Stebbi :) |
Þitt álit ?Segðu endilega þitt álit með því að nota athugasemdakerfið (comments).
Sendu mynd !Átt þú skemmtilega mynd í fórum þínum ? Skanna gamlar myndir og set á bloggið ef þig langar til. Hafðu samband !
Eldri innlegg
July 2013
|