Nýi snjallsíminn minn er með miklu stærri skjá en sá gamli, sem var orðinn 3 ára. Það kemur mér mjög á óvart hvað það breytir miklu. Var alveg sáttur við þann litla. En með þessum skjá (5.5 tommur) get ég orðið gert allt, sem ég annars gerði bara í borðtölvunni. Ég sagði skilið við fartölvuna mína þegar ég fékk gamla símann (3.7 tommur) - ætti ég nú að leggja borðtölvunni?
Reyndar næstum allt. Borðtölvan hefur enn yfirburði í myndvinnslu og skanninn góði er tengdur henni. Þetta blogg er beint úr símanum mínum og var ekkert mál. Skyldi þetta verða til þess að ég bloggi oftar? |
Myndirnar mínarEldri innlegg
July 2019
Slóð á straum |