Það eru margir mælikvarðar notaðir til að meta skólastarf. Hér í þessari töflu hafa verið settir upp tveir. Ánægja og námsárangur. Við slíkan samanburð lenda íslensku skólarnir í reit með bestu skólum eða í 7. sæti. Heimilid: http://www.buzzfeed.com/jakel11/where-in-the-world-you-can-find-the-best-schools-and-the-hap
0 Comments
Ég á mörghundruð bækur í mörgum bókaskápum. Passa í 30 - 40 kassa þegar ég þarf að flytja þær milli staða sem ég bý á. Sumar eru frá því ég var lítill drengur; sem sagt barnabækur. En ég eignaðist talsvert að þeim vegna þess að pabbi og mamma gáfu okkur árum saman krökkunum margar bækur í jólagjöf. Allt að fimm stykki um hver jól.
Síðar þegar ég fór að búa gekk ég í bókaklúbba og keypti á tilboði í gegnum þá heilu ritsöfnin. Á þessu gekk fram til ársins 1997 um það bil. Þá tók verulega að hægja á bókasöfnun minni. Einstaka bók keypt, gjafir og stundum verslað á útsölumörkuðum. Þessa áráttu að vilja eiga bækur tengist án efa þeirri trú minni að ég væri að höndla fjársjóð í formi þekkingar, fróðleiks og listar, sem kæmi mér vel á lífsleiðinni. Einnig var mér þetta í blóð borið frá mömmu og pabba og ólst upp við bækur allt um kringum mig. Þótti algjörlega sjálfsagt að hafa bækur út um allt. Í stofunni, á ganginum, herbergjunum flestum, á klósettum og ... já út um allt. En blessuð tölvan og blessað internetið hefur breytt öllu. Framundan eru bókalausar aldir og innan tíðar bókalaus ár. Og það áður en ég verð mjög gamall. Svo ég stend frammi fyrir eftirfarandi spurningum: Hvenær á ég að fara að kaupa mér lesbretti ? Hvað á ég að gera við allar þessar bækur í framtíðinni ? Sú einkennilega hefð hefur verið á fréttatímum í útvarpi og sjónvarpi að vera með upprifjun. Þegar horft er á fréttatíma sjónvarps er byrjað á því að fara hratt yfir það helsta sem í fréttum er. Þetta er eflaust gert til þess að vekja eftirtekt þess sem á horfir þannig að hann viti hvað í vændum er og sitji sem fastast við skjáinn. Allt í lagi með það.
Í lok fréttatíma er svo sama kynningin endurtekin til að skýra hvað hafi verið í fréttum. Þetta óþolandi innskot í lok fréttatima hef ég aldrei skilið. Ef ég hef horft á allar fréttirnar og fengið kynningu á þeim einu sinni... afhverju þá vera að kynna þetta aftur ? Þetta þarf maður að sitja af sér. Þetta er bara gert til að lengja fréttatíma. Í styttri fréttatímum t.d. í útvarpi er þetta ekki gert. Þar lýkur bara fréttafluttningi þegar síðasta fréttin er búin. Þetta er heldur ekki gert í lengri fréttaskýringarþætti eins og Kastljósi. Jebb. Náði 1.300 mynda markinu í dag. Flickr síðan mín er ekki bara með margar fallegar og sögulegar gamlar myndir, heldur er hún furðu mikið skoðuð. Frá því að ég opnaði síðuna 2009 hafa myndirnar þar verið skoðaðar alls 43.000 sinnum !
En það eru blikur á lofti. Flickr hefur nefnilega horfið frá skráarsniðnu viðmóti, þar sem notandi gat leitað að myndum eftir flokkum. Nú snýst viðmótið að því að auðvelt sé að eiga við það í símum og á spjaldtölvum. Og nýja útlitið er sannarlega glæsilegt...en hentar ekki flokkuðum myndasöfnum. Það hentar núinu. Ég er því farinn að líta í kringum mig. Hvað sem verður nú gert...mun það kosta mikla vinnu að færa allar þessar myndir. En það er ekki komið að því strax. Njótið: http://www.flickr.com/photos/guggaogloi/ |
Myndirnar mínarEldri innlegg
July 2019
Slóð á straum |