Ég er farinn að undirbúa "viðbótarþjónustu". Mig langar að fara að skanna soldið af skjölum og er ég þá fyrst og fremst að hugsa um blaðagreinar, viðtöl og minningagreinar sem þegar hafa birst einhversstaðar opinberlega og tengjast fjölskyldunni. Ég hef sjálfur ekki varðveitt mikið af þessu. Eiginlega á ég ekkert nema það sem ég hef ekki hent vegna leti þegar ég var yngri. En "fólkið mitt" hefur sumt verið duglegt að halda þessu eftir; t.d. amma Silla. Það var eiginlega þegar ég fór í gegnum myndakassa hjá henni sem ég fór að velta þessu fyrir mér. Hún geymir meira að segja jólakort.
Hvernig þetta er svo birt á netinu þarf ég að skoða. Skjölin verða örugglega ekki vistuð sem jpg skrár (myndir). Sennilega sem pdf. skjöl. Samt er vandamálið það að viðtölin innihlalda gjarnan myndir - og myndir eru jú mitt áhugamál. Annars er af nógu af taka þegar kemur að skönnun eða minningum á netinu. T.d. á fjölskyldan ýmsar gamlar matar og kökuuppskriftir, sem liggja í stílabókum og lausum blöðum í nokkrum eldhúsum. Þá hrannast upp vídeóklippur, sem ég læt með öllu afskiptalausar - þyrfti eiginlega að vera önnur manneskja í því að koma skikki á þær. Jæja sjáum hvað setur.
0 Comments
Erfiður og leiðinlegur vetur að baki. Kalt vor senn að baki. Framundan eitthvað betra hlýtur að vera.
"Mjög strangtrúaðir eru um átta prósent af átta milljónum Ísraelsmanna. Atvinnuleysi er meira meðal þeirra en annarra hópa, og aðallega meðal karla sem fá bætur frá ríkinu og stunda trúarlegt nám. Undanfarið hefur hins vegar atvinnuþátttaka þessa hóps aukist, þannig að 70% kvenna eru í vinnu og 45% karla. Sérfræðingar eru sammála um að ef atvinnuþátttaka þessara karla eykst ekki umtalsvert muni það þýða mikla kreppu í ísraelsku efnahagslífi" Kjarninn
Afhverju vinna strangtrúaðir gyðingar minna en aðrir gyðingar og afhverju er öfug atvinnuþátttaka meðal kynja? "Hvítlaukur (Allium sativum) er bakteríudrepandi og einstaklega góður gegn hverskyns sýkingum, enda afar löng hefð fyrir þeirri notkun. Áður fyrr var hann t.d. notaður gegn berklum og til að sótthreinsa sár og í báðum heimstyrjöldunum sem vörn gegn blóðeitrun. Hann styrkir ónæmiskerfið og er góður gegn kvefi, flensum og eyrnabólgum. Eins er hann talinn vinna á snýkjudýrum í meltingavegi og örva blóðrásina. Rannsóknir á hvítlauk hafa sýnt fram á góð áhrif hans á hjartað og hann er talinn veita vörn gegn æðakölkun og hjartasjúkdómum, lækka blóðþrýsting og blóðfitu, þynna blóð og draga úr líkum á hjartaáfalli. Rannsóknir hafa einnig bent til þess að hvítlaukur lækki blóðsykur og hamli vexti krabbameinsfrumna."
...segir Anna Rósa grasalæknir og ég trúin henni. |
Myndirnar mínarEldri innlegg
July 2019
Slóð á straum |