Eg hef verið nokkuð kvíðinn því hvað yrði um ljósmyndavefinn Flickr eftir að Yahoo var selt. Margir hafa verið að yfirgefa vefsvæðið og fara með myndir sínar annað af ótta við að nýji eigandinn myndi fara að eigna sér allt myndefni sem bærist á vefinn líkt og Facebook. Þrátt fyrir að vefurinn sé að dala er hann engu að síður enn stærsti almenni ljósmyndavefurinn og einnig einn sá allra besti.
Það voru því skemmtilegar fréttir í dag þegar kemur í ljós að SmugMug hafi keypt vefinn. SmugMugg er líkt og Flickr vandaður vefur sem er annt um varðveislu mynda viðskiptavina sinna. Þar er maður öruggur um að myndefnið sé ekki misnotað né selt þriðja aðila. Nú þarf maður ekki að huga að myndafluttningi strax -allavega. En ég var alveg kominn með B-plan og það var að flytja allar mínar myndir á Micrasoft Onedrive. Hér er svo stutt frétt á mbl. um málið: www.mbl.is/vidskipti/frettir/2018/04/21/smugmug_blaes_lifi_i_flickr/
0 Comments
Hvernig sem stóð nú á því þá voru dráttavélarnar heima á Efri- Brunná lengst af næsta ljóslausar. Almennt var það talið algjört aukaatriði að vélarnar væru með ljós. Þegar mest var unnið á vélunum og þá fram á kvöld var vor eða sumar og því bjart fram eftir öllu. Sumar vélarnar voru svo ekkert hreyfðar á veturnar. Þetta var þó ekkert einsdæmi; flestar vélar í sveitinni voru ljóslausar við vinnu á túnum og við akstur á vegum. Á þessu voru örfáar undantekningar. Dráttavélarnar í Fóðuriðjunni voru allar með ljósum og alltaf séð til þess að þær væru það. Nýjir Zetorar sem voru að koma í sveitina voru einnig með ljósum - minnsa kosti meðan þeir voru nýir. Svo sjaldgæft var að sjá vélar á þjóðvegum að kveldi með ljósum að maður tók sérstaklega eftir slíku. Dynki-dynk. Vélin (nú safngripur á Búvélasafninu á Hvanneyri) var alla tíð í mínum uppvexti alveg ljóslaus. Hún var samt útbúin með ljósabúnaði að framan. Afi var þó að þvælast á henni á veturnar í ljósaskiptum og hálfgerðu myrkri en miðaði ferðir sínar þó fyrst og fremst við dagsbirtuna. Í mesta skamdeginu batt hann öflugt vasaljós framan á vélina. Vélin var hinsvegar vel yfirfarin á Búvélasafninu og m.a. fékk hún nýjan ljósabúnað :) Farmallinn (gamli nallinn) Vélin var ekki með nein virk fram-, né afturljós, þótt hún væri útbúin sem slík. Hinsvegar var á vinstra afturbrettinu kastari til að lýsa aftur úr vélinn á tengd tæki. Hann virkaði þegar ég var lítill og fiktuðum við krakkarnir oft í þessum kastara. Það var nefnilega skrýtinn á þessum kastara takkinn. Fordinn(gamli): Vélin var yfirleitt nánast ljóslaus, en þó var hann þannig að yfirleitt var annað framljósið í lagi; sjaldnast bæði og aldrei afturljósin. Fordinn var notaður á veturnar að nokkru leyti áður en nýji fordinn kom og þá gott að hafa hann ekki alveg ljóslausan. Nýji Nallinn: Þegar nýi Nallinn kom þótti mér það sérstakt að hann var vel útbúinn ljósum. Þetta var fyrsta og á tímabili eina vélin sem hægt var að aka um með ljósum. Hún var einnig með kastara aftan á sem síðar var talsvert notaður þegar verið var að binda fram eftir kveldi, til að lýsa upp bindivélina. Reyndar kom á daginn að þegar unnið var frameftir kvöldum á sumrin að það var betra að vera með ljós og var hún því upplýst í heyskap meðan hinar tvær vélarnar voru eins og draugar í kringum hana. Hér held ég að notagildi góðra ljósa á dráttavélium hafi í fyrsta skipti sannað gildi sitt. Nýji Fordinn: Þessi vél kom með miklum og góðum ljósum fram og aftur, m.a. bæði háum og lágum ljósum. Einnig húsi með miðstöð og inniljósi. Eftir að hún kom minnkaði hinsvegar viðhaldið á ljósabúnaði á hinum vélunum; sérstalega gamla Fordinum. Í dag sér maður að nýjar dráttavélar eru útbúnar margskonar ljósaútbúnaði, til aksturs og vinnu og enginn er að vinna eða ferðast lengur á ljóslausum vélum. Það er eins og margt annað liðin tíð. |
Myndirnar mínarEldri innlegg
July 2019
Slóð á straum |