Við vorum sex klukkustundir að fljúgja hingað til Chania á Krít. Tímamisumurinn eru þrjár klukkustundir þannig að við unnum okkur inn soldinn aukatíma. Hótelið okkar er lítið og fjölskyldurekið. Þegar við komum kom konan úr móttökunni hlaupandi út og bauð okkur velkomin. Hún fylgdi öllum til herberja (lokaði móttökunni á meðan). Starfsmennirnir dúlla sér um allt og er stundum erfitt að sjá hverjir eru gestir og hverjir eru starfsmenn. Hótelið er með 34 íbúðir og eru svalirnar okkar á jarðhæð með 2,5 metra út í sundlaug.
Túrisminn er nokkuð öðruvísi hér heldur en til dæmis á Spáni. Hér eru ekki stór hótel og umhverfið allt fullt af litlum og frekar ómerkilegum húsum að sjá. Ströndin er ekki með götu meðfram heldur þarf að finna stíga milli húsa og smeigja sér á ströndina. Andrúmsloftið er gott og afslappað og við líka
0 Comments
Krít er stærst grískra eyja og hefur gælunafnið “þröskuldur Evrópu” vegna staðsetningar sinnar, en hún liggur við mörk Evrópu, Asíu og Afríku. Krít er 260 km að lengd og breiðust er hún um 56 km. Eyjan hefur til að bera fjölbreytt landslag; fjalllendi með snæviþöktum fjallstoppum, gróskumikil vínræktarhéruð og strendur sem heilla sólþyrsta ferðalanga. Verður hverrar krónu virði. https://www.youtube.com/watch?v=WjNbMcOXIFY Einu sinni var tröllastrákur sem átti heima í tröllafjalli. Hann hét Jón. Mamma hans hét Jóna en pabbi hans hét Stóri Risi. Dag einn fór tröllastrákurinn að elda. Hann eldaði sér fisk. Síðan fór tröllastrákurinn út því það var nótt. Þá kom tröllastelpa. Þau fóru heim til tröllastráksins að borða. Svo fóru þau út að leika sér. Þau kysstust. En þá var að koma dagur. Þá gerðist svolítið óheppilegt. Þá kom sól og tröllin urðu að steini. Höfundur er nemandi úr 1. bekk
Góð spurning. Þetta eru nú bara litlar 900 milljónir svo eitthvað þarf að hugsa sig um. Ég til dæmis veit eiginlega ekkert hvað alvöru hlutir kosta. Það er helst að ég sé eitthvað inni í matvöruverði, verði á raksápu og klósettpappír...sem trúlega verður alveg óþörf vitneskja í framtíðinni. Sennilega þarf verðvitund mín að "vaxa" út fyrir þúsundkalla og snúast um milljónir.
Hvað ætli alvöru sportbátur til að sigla um Hvammsfjörðinn í kvöldlogninu kosti ? Ekki minnstu hugmynd hef ég um það né hvort ég þurfi einhverja sértæka menntun til að fá að stýra slíkum grip. Eða sumarhús í sólbjörtu landi eins og Frakklandi...hvað skyldi slíkt kosta ? Alvöru hlutir sko. Hús á tveimur hæðum á Seltjarnesinu með innisundlaug og vínkjallara...hvað skyldi það kosta ? Eða að veiða í viku í Hofsá í Vopnafirði ? Hva..afhverju veit maður ekki svona hluti ? Hvar er verðskynið ? Ég veit ekkert hvernig best er að eyða öllum þessum peningi frá frúnni í Hamborg. Furðulegt fyrir það fyrsta að hún skyldi vilja gefa mér þessar milljónir. Já eg gefst upp. Úpps...(sagði bannorðið). Merkilegt hversu íhaldssöm við erum á morgunmat. Við sættum okkur flest við að borða næstum sama morgunmatinn árum saman. Hinsvegar viljum við tilbreytingu i öllum hinum máltíðunum. Nú vita allir að tíminn til að útbúa morgunmat er hafður lítill en það ætti ekki að koma í veg fyrir fjölbreytni. Fólk heldur sig engu að síður við sinn hafragraut, sína tegund á morgunkorni eða sitt ristaða brauð með osti.
Hversvegna í ósköpunum er þetta svona ? |
Myndirnar mínarEldri innlegg
July 2019
Slóð á straum |