Um FjallagrösFjallagrös (fræðiheiti: Cetraria islandica) er þrátt fyrir nafnið flétta (þörungur og sveppur í samlífi) en ekki gras. Þau eru algeng í fjalllendi og hásléttum á norðlægum slóðum. Fjallagrös eru sérstaklega algeng á Íslandi en finnast einnig á fjöllum í norðurhluta Wales, Skotlandi og suð-vestur Írlandi. Blöð fjallagrasa eru mismunandi, þau eru oft brúnleit eða nær svört, mjó og rennulaga, eða þau geta verið blaðkennd og frekar breið,ljósbrún eða grænleit á lit. Blaðjaðrarnir eru alsettir mjóum randhárum.
Fjallagrös hafa verið nytjuð á Íslandi í margar aldir, þau voru notuð soðin í blóðmör, seyði af þeim drukkið, notuð sem litunargras, möluð í mat, þau soðin (hleypt) í grasagraut (grasalím) og haft sem eftirát. Það tíðkaðist að fara í grasaferðir til að safna fjallagrösum síðsumars. Fjallagrös eru næringarrík og hafa mikið verið notuð til lækninga. Uppistaðan í fjallagrösum - 40-50 % - eru slímkenndar fjölsykrur. Slímið þenst út þegar það kemst í snertingu við vatn. Slímsykrurnar meltast í þörmum og þess vegna hefur eðlisávísun fólks rekið það til að borða fjallagrös til að sefa og fylla magann þegar hungursneyð geysaði og enginn annar matur var í boði. Fjallagrös voru harðindamatur eins og kemur fram í þessari vísu: Vor fram reiðir konu kind og kallar það sé nægtaborð fjallagrös með flautavind og fínlega þéttan bruðnings sporð. Í fjallagrösum er beiskjuefni sem örvar rennsli munnvatns og magasafa og verkar styrkjandi á maga og örvar matarlyst. Rannsóknir benda til að efni í fjallagrösum örvi ónæmiskerfið og verki hamlandi á alnæmisveiru |
Fjallagrös til söluTil sölu fríð fjallagrös,
sem hafa verið vel hreinsuð. 70 gr. á 1000 kr. í hentugum lokanlegum pakkningum. |