Það eru auðvitað reknir margir biblíuskólar um allan heim. Fyrir rétt tæpum 25 árum gékk ég í einn slíkan. Það var að grunni bandarískur skóli, sem Hvítasunnusöfnuðurinn framlengdi á Íslandi. Þetta var bréfaskóli fyrir tíma tölvupóstsins.
Í dag eru allir nettengdir allan sólahringinn og því auðvelt að sækja sér nánast því hvaða fræðslu sem er í gegnum netið. Mér datt í hug að skoða "flóru" biblíuskóla með það í huga að ef mér litist nú eitthvað á þá gæti ég tekið eitt eða tvö námskeið. Í stuttu máli er þetta alveg rosaleg "flóra" og lang lang mest af efninu er bandarískt. Eftir rannsóknir á þessu í nokkur kvöld fann ég að lokum allavega þrjá skóla sem virtust lausir við sértrú, ofstæki, boðunarpresta og fl. Af þessum þremur valdi ég svo ChristianCoursus.Com. Það er deild úr bandarískum háskóla. Fjarnámsumhverfið er nútímalegt og þægilegt og maður getur valið sjálfur skuldbindingu og ráðið útgjöldum. Sumt frítt, sumt endar með einkunnaskjölum og sumt er hreint og beint háskólanám. Svo það er niðurstaðan ... ef eitthver lesandi hefur áhuga á að auka þekkingu sína í þessum efnum þá er bara að skella sér á eftirfarandi slóð: http://rbc.christiancourses.com/
0 Comments
Mér hefur alltaf þótt afar merkilegt að í hvert skipti sem framið er hryðjuverk, verða jarðskálftar, flóðbylgjur, skógareldar, skotárásir og bara nefndu það.... í fjarlægustu ríkjum heims eða afskektum héruðum Kína... alltaf finnur Ríkisútvarðið einhvern Íslending sem vill svo til að er annaðhvort búsettur á staðnum eða skiptinemi. Manni finnst einhverveginn að þetta ætti ekki að vera sjálfgefið hjá svo fámennri þjóð. Mig undrar þetta.
Í raun veit ég bara um eitt land þar sem RÚV hefur ekki tekist að finna Íslending til að leita frétta hjá en það er Norður Kórea. |
Myndirnar mínarEldri innlegg
July 2019
Slóð á straum |