Laugardaginn 18.maí verður Ríkharður Eyjólfsson fermdur í Hjarðarholtskirkju. Veitingar í kjölfarið í Auðarskóla.
Þennan sama dag verð ég næstum 50 ára. Komdu vestur í veislu !!
0 Comments
Undanfarnar sex vikur hef ég glímt við það að endurgera gamla tölvu og gera að minni aðaltölvu. Um er að ræða átta ára gamla borðtölvu sem Keli og Stulli áttu og reyndar smíðuðu á sínum tíma. Hún var notuð í leiki alveg út árið 2010 en þá fékk Rikki hana og notaði fram á mitt ár 2012. Alltaf gekk tölvan á sínu Windows XP. Tölvan lifði meðal annars af suðurlandsskjálftan 2008, nema reyndar skjárinn.
Upprunalega hugmyndin hjá mér var að skipta bara um móðurborð, minni og örgjafa. Setja upp Linux Ubuntu og nota tölvuna fyrir myndaumsýslu. Ef þetta gengi vel ætlaði ég að leggja fartölvunni. Fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir um 50.000 kr. Í stuttu máli gekk þetta nú ekki eftir. Allur vélbúnaður var orðinn svo lúinn að á endanum stóð ekkert eftir nema skjárinn (sem var frá 2008), tölvukassinn, lykklaborð og hátalarar. Einn harður diskur og geisladrif voru of gömul til að tengjast móðurborðinu, síðan hrundi hinn harði diskurinn og tölvan fór aftur í viðgerð. Þá hrundi rafmagnsafltakinn og tölvan fór í þriðja sinn í viðgerð. Í öll skiptin sem eitthvað var að hélt ég að stýrikerfið Ubuntu væri hrunið, þannig að ég var alveg við það að hætta við þetta og kaupa Windows á tölvuna (Ubuntu er ókeypis). En að lokum kom þetta. Og hér sit ég alveg rosalega ánægður með útkomuna. Öfluga tölvu, stóran skjá, skemmtilegt og mjög hraðvirkt stýrikerfi sem spennandi er að læra á og fullt af nýjum forritum sem eru gerð fyrir linux/ubuntu. Allur hugbúnaður ókeypis. Ég er viss um að þessi skref verð mér þroskandi til lengri tíma litið. PS... reyndar endaði kostnaðurinn við vélbúnaðinn í 97.000 kr. :( Stundum er það þannig með Íslendinginn að hann virðist taka ást á einhverri einni vöru í lengri tíma. Stundum kynslóð eftir kynslóð. Ein þessara vara er Colgate tannkremið. Það þarf talsverða leitun að öðrum tegunum í verslunum... finnast þó. En alla hillumetrana á Colgate. En það má spyrja spurninga. Hafa Íslendingar svona mikið dálæti á vörunni, eða þekkja þeir ekki aðra ? Ef einhverjum finnst þessi tegund vond getur hann keypt aðra ? Er þetta góð tannkremstegund yfirleitt ? Það sem er öruggt er að innflytjandinn stendur sig greinilega vel. Aðrar tannkremstegundir komast varla í hillur á Íslandi - þökk sé samkeppnislausri smásölu í landinu. Neytandinn heldur áfram að kaupa Colgate... án þess að spyrja. Veit hann svosem um eitthvað betra tannkrem ? Hvað varðar aðrar vörur sem ÍslMelroses teið góða...þá er þar mikil samkeppni og neytandinn fær val. Sama á við um jólakonfektið Macintosh. Hér halda Íslandingar áfram að kaupa vörurnar í miklum mæli þrátt fyrir að þeir geti valið um aðrar. Það er ekki ofsögum sagt að stundum er ekki árennilegt fyrir skólabílstjóra að vera á ferðinni með verðmætan varning í öllum verðrum. Oft eru þetta litlar rútur með 10 - 13 börn, stundum rútur með um og yfir 20 börn og svo niður í bíla á fámennari leiðum með nokkur börn.
Ef eitthvað fer úrskeiðis í rútu í byl er bara ein fullorðin manneskja til staðar með mörg börn. Stundum líka leikskólabörn. Ef rútan rennur til, eða festist geta börn orðið hrædd... og eina fullorðna manneskjan í nánd er skólabílstjórinn ...upptekinn við aksturinn. Stundum veldur ótti og grátur barna bílstjóra verulegri truflun. Því hefur það þróast þannig að ef eitthvað er tvísýnt með veður eða færð þá er ekki keyrt. Skiptir þá engu hversu góðir bílarnir eru né fjarskiptin við þá. Það er hreinlega of mikið í húfi. Þegar ég og Sigga systir vorum í skóla var heimavist. Lausn þess tíma. Engu að síður þurfti að aka nemendum til og frá skóla í upphafi og í lok viku. Saurbæingar bjuggu við það að Svínadalurinn lokaðist fyrr en aðrar leiðir Þá var lausnin að aka kringum Strandir. Við það var ekki hikað í oft tvísýnum og vondum veðrum. Ég man eftir því að hafa verið að hristast í Landrover í 6 tíma... og ef ég man rétt lenti Sigga í því að hristast í allt að 16 tíma. Í kringum Strandir. Var að skoða mér til fróðleiks ókeypis "myndaalbúmskipuleggjara". Einn þeirra " FastStone Image viewer " er býsna vandaður. Er mjög auðveldur viðureignar, léttur og liðugur og með flott viðmót. http://www.faststone.org/FSViewerDetail.htm
Eini gallinn er sá að hugbúnaðurin er ekki með neinar leiðir til að færa myndir beint á netið (Facebook, Flickr og framvegis). |
Myndirnar mínarEldri innlegg
July 2019
Slóð á straum |