Þann 1. febrúar síðastliðinn var barnabarn mitt nr. tvö skírt í Kotstrandarkirkju. Skírnina annaðist Helga systir og svo gerðu allir sér glaðan dag í skírnarveislu í Hveragerði. Nú er ég búinn að setja inn nokkrar myndir frá skírninni góðu. Sjá slóð. http://www.flickr.com/photos/guggaogloi/ Svo styttist í þriðja barnabarnið, gæti komið í heiminn eftir um það bil átta vikur.
0 Comments
RÚV hefur undanfarin tvö sunnudagskvöld sýnt hádramatíska mynd um 100 ára sögu Eimskipafélags Íslands. Myndin var drekkhlaðin sögulegu lofi á þjóðfélagslegt mikilvægi Eimskips, frábærum mynd-skeiðum frá ýmsum tímum og hádramatískri auglýsingarödd Egils Ólafssonar. Það vakti hins vegar athygli að skautað var framhjá þeirri staðreynd að Eimskip fór ævintýralega á hausinn eftir bankahrun og kröfuhafar töpuðu yfir 100 milljörðum króna. Það var heldur ekkert minnst á að þetta 100 ára gamla félag er rekið á 2004-kennitölu. Það er því í reynd einungis tíu ára gamalt.
Byggt á Kjarnaum frá 13.02.14 Í dag gerðist sá einstæði atburður að tvær manneskjur fengu gull í alpagrein á ólympiuleikum. Önnur þeirra var Tina Maze skíðadrotting frá Slóveníu. Tina hefur verið sigursæl undanfarin ár og er í hávegum höfð í heimlandi sínu. Kannski vita ekki allir að vinsældir Tinu eru ekki eingöngu vegna þess hversu frábær skíðakona hún er, heldur líka vegna þess að hún er söngkona. Hér má sjá myndband með vinsælasta lagi hennar: Á visi.is birtist nýlega frétt um framfarir í samskiptum bíla. http://visir.is/allir-bilar-tali-saman/article/2014140209681
Það verður að segjast að út í þetta hefur maður ekkert hugsað; að bílar tali saman. Til dæmis láti hvern annan vita ef þeir eru komnir svolítið nálægt hverjum öðrum eða spyrjist fyrir um það á blindum hornum hvort nokkuð sé að koma bíll fyrir hornið.. svo fátt eitt sér nefnt. Hitt verður að segjast að þetta eru tækninýungar sem líklegar eru til þess að auka öryggi farþega. Að minnsta kosti ef við útilokum þann möguleika að mikið ósætti myndist milli bíla t.d. af ólíkum tegundum eða þjóðernum. Í gær prufaði ég að nota Ólífuolíu út harðfiskinn minn. Ég bjóst ekki við miklu, en niðurstaðan kom mér á óvart. Þetta á ótrúlega vel saman. Beyska bragðið af jómfrúarolíunni passar miklu betur við saltið heldur en smjör. Græni liturinn sem kemur á harðfiskinn er líka spesflottur !
|
Myndirnar mínarEldri innlegg
July 2019
Slóð á straum |