Þann 18. maí síðastliðinn var skírð í Hjarðarholtskirkju Bríet Erna Sturlaugssdóttir en hún er dóttir Anítu Rúnar Harðardóttur og Sturlaugs Eyjólfssonar. Bríet litla er fimmti ættliðurinn í beinan kvennlegg í Sámstaðarfjölskyldunni og var við það tilefni var myndin hér við hliðina tekin. Ættliðirnir fimm í aldursröð eru: Sveinbjörg Ólöf Sigurðardóttir langalanga amma Fædd : 7. Nóvember 1930. Búsett á Sámsstöðum Jófríður Anna Eyjólfsdóttir langamma Fædd : 28. Desember 1953. Búsett á Sámsstöðum Eyrún Dögg Guðmundsdóttir amma Fædd : 31. Júlí 1979. Búsett í Búðardal Aníta Rún Harðardóttir móðir Fædd : 12. Maí 1997. Búsett í Búðardal Bríet Erna Sturlaugsdóttir.Fædd : 8. Apríl 2014 Búsett í Búðardal. Á myndinni heldur langalanga amman á Bréti.
0 Comments
Mér finnst stundum eins og það sé sólskin í sumu sem maður borðar. Kannski er áþreifanlegast að horfa á tómata í þeim efnum. Maður kaupir þá fölrauða eða appelsínugula en þegar þeir hafa fengið að standa á borði við glugga í einn til tvo sólarhringa verða þeir rauðir ... eftir að hafa drukkið í sig ljósið um hríð. Þegar maður borðar eldrauðan tómat setur maður sólskin í magan og allan kroppinn.
Þegar ég var lítill að alast upp á Efri Brunná fengust ekki tómatar eða gúrkur nema að sumri til. Því var þetta álegg eingöngu á brauði á birtu og sólskinstíma. Maður borðaði því brauð með sumrinu sjálfu á. Á kosningavef RUV má finna góðar upplýsingar um rekstur sveitarfélagsins Dalabyggðar:
Í Dalabyggð bjuggu 673 þann 1. janúar 2014. Sveitarfélagið er í 41. sæti yfir fjölmennustu sveitarfélög landsins. Í síðustu kosningu var óbundin kosning. Þá eru persónukosningar þar sem kosning er ekki bundin við framboð. Allir kjósendur eru í kjöri nema þeir sem eru löglega undanþegnir skyldu til að taka kjöri eða hafa fyrirfram skorast undan því. Á kjörskrá voru 512. Oddviti sveitarstjórnar er Jóhannes Haukur Hauksson. Í Dalabyggð er innheimt hámarksútsvar. Skatttekjur á hvern íbúa árið 2012 námu 670.765 krónum, þegar framlag Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga er talið með, sem er vel yfir landsmeðaltali. Gert er ráð fyrir að sveitarfélagið fái rúmlega 180 miljónir króna í framlög frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga á þessu ári. Skuldir sveitarfélagsins í árslok 2012 námu 70 % af árstekjum. Samkvæmt samantekt Íslandsbanka frá því í febrúar 2013 var Dalabyggð eitt þeirra sveitarfélaga sem er með litla skuldsetningu og stendur rekstur vel undir skuldum, miðað við gefnar forsendur. Þær upplýsingar voru unnar úr ársreikningum sveitarfélaganna fyrir árið 2011. Ef skoðaðar eru nokkrar myndir kemur líka í ljós að tekjur íbúa eru lágar í Dölum. Árið 2009 munaði um 50.000 kr. á meðallaunum íbúa í Dalabyggð og landsmeðaltals. Á síðustu árum hefur dregið en frekar í sundur og nú er munurinn um 100.000 á mánuði. Lífskjör í Dölum erum almennt lakari en gengur og gerist á landinu. Aldurskipting íbúa er einnig Dalamönnum óhagstæð í efnahagslegu tilliti. Þar er hlutfallslega mun minna af fólki á aldursbilinu 30 - 60 ára en mun meira af fólki komið á efri ár. |
Myndirnar mínarEldri innlegg
July 2019
Slóð á straum |