Eins og ég hafði áður tilkynnt hef ég verið að vinna að því "TAGGA" allar myndirnar í myndasafninu á Flickr. Þ.e. búa til atriðaorðasafn, sem gagnast vel þeim sem leita að einhverri tiltekinni mynd eða myndum. Þetta hefur verið flókin og mikil vinna og er næstum búin. Vel innan við 100 myndir eftir af 1.500. En ég ætla hér með að opna þetta formlega með leiðbeiningum.
Með því að smella á þennan hlekk https://www.flickr.com/photos/guggaogloi/tags/ er farið inn á atriðaorðssafnið. Þar eru í stafrófsröð eru öll atriðin sem myndirnar eru merktar með. Ef einhver vill t.d. skoða myndir sem tengjast Efri-Brunná þá er orðið undir E. Þar sést líka hversu margar myndir tengjast Efri Brunná. Bara að smella á orðið og myndirnar koma á skjáinn. Þetta eru býsna mörg atriði og kerfið sem sett er upp er auðvitað miðað mikið af mínum eigin þörfum. Ég hef takmarkað nöfn við ömmur og afa mín og Guggu og síðan alla þeirra afkomendur. Það er slatti og bætist í þann hópinn. Núverandi makar fjölskyldumeðlima eru líka með nöfn sín í safninu. Föður- og móður systur eða bræður og ömmu og afa systur og bræður eru ekki með nöfn í safninu. Systkini okkar Guggu og afkomendur þeirra og makar eru hinsvegar í safninu. Einhversstaðar varð að draga mörkin. Mér finnst líklegt að ég endurskoði staðsetningarorðin; þ.e. sýslurnar. Það er skynsamlegra að GEO tengja myndir til að fá gott yfirlit yfir hvar myndir eru teknar. (Notast við GPR og landakort) Flickr er með slíkt kerfi og ég er með á annað hundrað myndir þegar tengdar þannig. Þá kemur bara kort upp og fjöldi mynda á hverjum stað. En hugsanlega meira um það síðar. Því miður er það þannig að aðeins innskráðir Yahoo og Flickr notendur geta sett athugasemdir við myndir í safninu. Margir eru reyndar nú þegar með tölvupóst hjá Yahoo og þá er lítið mál að stofna Flckr reikning...þeir eru ókeypis. Ég veit um fjölskylumeðlimi sem hafa stofnað reikninga einungis til að geta sett inn athugasemdir og leiðréttingar á myndasafnið. Linkurinn á atriðaorðasafnið verður svo einnig á hliðarstiku á forsíðu og svo á myndasíðunni.
1 Comment
Í október fer ég að ganga að nýju með húfu þegar ég er útivið. Með húfuna geng ég út april. Þannig eru húfumánuðir í lífi mínu sjö og húfulausir mánuðir aðeins fimm. Þannig er Ísland.
|
Myndirnar mínarEldri innlegg
July 2019
Slóð á straum |