Mjög góð þýdd dönsk grein um hvernig danskur múslimi gerðist vígamaður íslamska ríkisins. Sjá hér:
http://eyjan.pressan.is/frettir/2014/09/27/ur-sakleysi-aeskunnar-yfir-i-fremstu-viglinu-islamska-rikisins-hvernig-verda-ofgamenn-til/
0 Comments
Soldið sérstakt að geta verið að eldast og jafnframt eiga í gegnum netið þvílíkan aðgang að minningum. Maður getur slegið inn leitarorðum eins og "Saurbæjarhreppur", " Kaupfélag Saurbæinga" og "Fóðuriðjan Ólafsdal og maður fær upp á skjáinn gamlar fréttir. Ljósmyndasafn með ýmsum myndum úr Dölum aðgengilegt á www.budardalur.is
Hægt er að nálgast gamlar kvikmyndir, ljósmyndir og síðast en ekki síst tónlist með uppáhaldstónlistarmönnum. Og það í mynd... eins og ekkert hafi breyst. Já nú eru minningar okkar ekki lengur bundnar skrifum í dagbækur og fáeinum ljósmyndum; við frískum upp á þær og sækjum beint á Internetið. Og ég tek þátt í þessu með því að reyna að koma upp ljósmyndasafni fjölskyldunnar á Flickr svæði mínu. Enda elska ég stafrænu byltinguna og mér virðist sem ekki sé neitt slæmt að verða gamall í henni. Hér að neðan er t.d. alveg frábær minning, sem ég mun getað yljað mér við um sjötugt ! https://www.youtube.com/watch?v=Cv6tuzHUuuk
|
Myndirnar mínarEldri innlegg
July 2019
Slóð á straum |