"Nú þegar nýtt bóluástand er handan við hornið og nú þegar sala banka í eigu ríkisins er framundan, af því að það á að vera svo „óeðlilegt“ að ríkið reki banka, þá er hollt að rifja upp einkareksturinn. Var það „eðlilegra“ að fyrri kaupendur 1) fengu lán fyrir kaupverðinu, 2) sem var lágt og 3) borguðu lánin aldrei ? Var það „eðlilegra“ að afhenda mönnum sem 4) aldrei höfðu rekið banka þessa 5) innviði samfélagsins, sem eru 6) á fákeppnismarkaði og var það „eðlilegt“ að 7) stjórnvöld horfðu aðgerðalaus á 8) að fjárglæframennirnir tóku sparifé almennings til eigin nota ? Verður það „eðlilegt“ 9) að selja banka á ný án þess að hafa sett nokkrar reglur eða breytt, sem geta hindrað að sagan endurtaki sig ekki ?"
Ragnar Ögmundsson.
0 Comments
Myndin er tekin 23. september. Fyrsta október sest sólin eiginlega nákvæmlega fyrir miðju fjarðarins, séð frá Búðardal. Einn af þeim góðum hlutum sem felast í því að búa í Búðardal er endarlaus útgáfa af sólsetrum allt árið um kring.
|
Myndirnar mínarEldri innlegg
July 2019
Slóð á straum |