Sjálfkeyrandi bílar eru handan við hornið og munu sem slíkir stórauka öryggi og skilvirkni í umferð. Þetta eru sannarlega góðar fréttir. Sjá : http://www.ruv.is/frett/sjalfkeyrandi-bilar-eru-handan-vid-hornid
0 Comments
Í fjölmiðlum upp á síðkastið hefur verið fjallað um mögulega sölu sveitarstjórnar Dalabyggðar á húsakosti Lauga í Sælingsdal. Gert er ráð fyrir sölunni í fjárhagsáætlun sveitarfélagsins fyrir árin 2016-2019. UMFÍ hefur um árabil rekið vinsælar Ungmenna- og tómstundabúðir að Laugum yfir skólaárið sem nemendur í 9. bekk víða að landinu sækja. Leigusamningur er í gildi á milli UMFÍ og Dalabyggðar til ársins 2019. Gangi salan eftir stendur ekki til að rifta samningnum. Rekstur Ungmenna- og tómstundabúða UMFÍ er því tryggður í nokkur ár.
Stefnt hefur verið að sölu Lauga um árabil eða frá því því sveitarstjórn Dalabyggðar keypti fasteignirnar af ríkinu árið 2013. Sveinn Pálsson, sveitarstjóri Dalabyggðar, segir fasteignirnar ekki verða seldar hverjum sem er. |
Myndirnar mínarEldri innlegg
July 2019
Slóð á straum |