Í nýlegri breskri rannsókn á því hvað gerir fólk hamingjusamt kemur mjög á óvart hversu mikinn þáttur menningarinnar er. Á topp 10 listanum er menning áberandi í nokkrum sætum. Það tóku 20.000 manns þátt í þessari rannsókn:
Hér er topp tíu listinn: 1. Nánd, kynlíf (14,20%) 2. Leikhús, danssýning, tónleikar (9,29%) 3. Listsýning, safnaferð, bókasafn(8,77%) 4. Íþróttir, hlaup, hreyfing (8,12%) 5. Garðyrkja (7,83%) 6. Söngur, koma fram (6,95%) 7. Samræður, félagsleg samskipti (6,38%) 8. Fuglaskoðun, náttúruskoðun (6,28%) 9. Ganga, fjallganga (6,18%) 10. Veiðar, fiskveiðar (5,82%) Já kannski hefði maður búist við að þættir eins og; að vera með börnum, vera með fjölskyldunni, vera innan um dýr, lesa góða bók(menning reyndar) og fara í ferðalög myndi vera á topp tíu. Liðir nr. 2,3 og 6 eru nánast í núlli hjá mér svo nú er dugar ekkert annað en að hella sér út í það að njóta menningarinnar... ef ég vill verða hamingjusamari. Sjá nánar á fréttamiðlinum www.stundin.is
0 Comments
|
Myndirnar mínarEldri innlegg
July 2019
Slóð á straum |