Enn bætist í myndasafnið. Hef undanfarna daga sett hátt í 50 skannaðar gamlar myndir inn á Flickr. Sjá hér.
0 Comments
Skemmtileg mynd. Skýlið sem hýsti stiga og stigapall er búið að missa alla klæðningu. Bara ber steypan eftir. En skýlið veitti leiksvæði okkar krakkanna skjól. Í þessum sandkassa var alltaf sól og blíða í minningunni. Út um opinn gluggann á eldhúsinu barst okkur svo reglulega leiðbeiningar frá mömmu eða eitthvert góðgæti. Myndin gæti verið frá sumrinu 1972. Guli bíllinn fyrir framan Sólveigu reyndist gríðarlega langlífur. Drengina tvo í fjólubláupeysunum þekki ég ekki.
Ég hef áður fjallað um þá upplifun mína að ungt fólk horfi ekki lengur á sjónvarp. Nú í dag birtir hinn stórgóði fjölmiðill Kjarninn könnun á þessu á Íslandi. Þar kemur þetta berlega í ljós. Á síðastliðnum sex árum hefur sjónvarpsáhorf minnkað um 38%. Þetta á við um allar sjónvarpsstöðvar. Sjá frétt hér.
Hvað gerir fólk í staðinn ? Það er á samfélagsmiðlum. Ef það ætlar að horfa á sjónvarpsefni þá velur það sér efni til að horfa á í tölvum, símum og snjallsjónvörpum. Þegar því hentar. Þannig að mitt næsta sjónvarp verður snjallsjónvarp. |
Myndirnar mínarEldri innlegg
July 2019
Slóð á straum |