Í mínu uppeldi var hafragrautur aldrei morgunmatur, heldur iðulega hafður á kvöldin að vetri til. Ég kynnist ekki þeim sið að borða hafragraut að morgni fyrr en ég fer að dvelja næturlangt í heimsóknum hjá ömmu Sillu í Ártúnum. En þessi einfaldi og ódýri matur er ótúlega hollur samkvæmt þeim upplýsingum sem maður viðar að sér. Eftirfarandi upplýsingar eru teknar af vefslóðinni: www.uppskriftir.net
0 Comments
Jesús ég get aldrei skilið kærleik þann
að deyja fyrir sérhvern mann. Ég þakka þá von sem þú gefur og allt sem þú gert fyrir mig hefur. Annað erindi ljóðsins "Bæn" eftir Auroru Borealis tekið af slóðinni: http://www.ljod.is/index.php/ljod/view_poem/3128 Eftir að ég fór á heilsufæðið góða sem er að gera mér gott, þá varð ég að sjá eftir ýmsu sem mér þótti gott. T.d. bjór og eitt og annað áfengt Ég hafði aldrei verið neitt hrifinn af hvítvínum en nú bregður svo við að samkvæmt heilsu fyrirmælum ætti ég aðeins að leyfa mér að drekka lífrænt ræktuð hvítvín.
Svo nú er ég að reyna að venjast þeim og hafa ánægju af. Ég hef bara smakkað þrjú frá áramótum og ég er ekki frá því að þetta verði í lagi. Þar sem þetta er orðið svona þröngt vínsvið hjá mér datt mér í hug að halda aðeins utan um þetta. Lífrænt ræktuð hvítvín í sölu á Íslandi eru hreint ekki svo mörg. Svo verkefnið verður ekki yfirþ er og er að koma mér upp gagnagrunni. Birti hér drög af honum á netinu. Sá merkilegi siður hefur tíðkast innan fjölskyldunnar að farnar eru svokallaðar kvennaferðir á haustin. Ferðirnar eru eins og nafnið gefur til kynna eingöngu ætlaðar konum í fjölskyldunni; þ.e. afkomendum ömmu Sillu (Sigríðar Símonardóttur). Mér fannst það nokkuð merkilegt að í allri minni skipulagningu á myndasafninu mínu hafði ég ekkert gert fáð fyrir þessum þætti, sennilega að því að ég fer aldrei í þessar ferðir. En nú er ég búinn að gera bragarbót á og myndir af kvennaferð komnar inn á Flicr svæðið mitt. Spurningin er bara; hvenær var þessi ferð ? Margt bendir til að hún sé farin 1995 en ég þarf að fá fleiri "hint". Hvernær var fyrsta kvennaferðin farin ? Er þetta kannski hún ? Sjá https://www.flickr.com/photos/guggaogloi/ Klukkan 16.00 í dag fæddist þeim Anítu Rún Harðardóttur og Sturlaugi Eyjólfssyni dóttir. Fæðingin, sem var á Akranesi, gekk vel og stúlkan er spræk. Hún reyndist tæpar 13 merkur og 49 cm löng. Hún hefur feningið nafnið Bríet.
Ég er orðinn margfaldur afi. Myndir koma síðar. |
Myndirnar mínarEldri innlegg
July 2019
Slóð á straum |