Í gær var opnaður nýr og glæslegur vefur í Dölum. Vefurinn er á léninu www.budardalur.is og er hugsmíð Sigurðar Sigurbjörnssonar frá Víghólsstöðum. Vefurinn er metnaðarfullur og skemmtilegur með mikla áherslu á miðlun menningarverðmæta úr Dölum. T.d. er búið að koma á fót ljósmyndasafni og fl. Þá er ógetið vefmyndavélar, sem staðsett er í Búðardal. Nú er alltaf hægt að sjá hvernig verðrið er á þeim bænum... eða bara fylgjast með götulífinu. Um síðustu helgi útskrifuðust tveir stúdentar í fjölskyldunni. Birna Björt og Anna Þóra gerðu það með dagsmillibili. Hef nú sett fáeinar myndir af nýju stúdentunum inn á myndasvæðið mitt.
Sjá hér. http://www.flickr.com/photos/guggaogloi/ Á fimmtudaginn var ég í heimsókn í Flóanum. Þeim eina sanna í Árnessýslu. Flóinn er í dag allur sameinaður í eitt sveitarfélag. Þetta er vaxandi samfélag og víða framkvæmdir.
Ég gisti eina nótt í Vatnsholti (vefsíða hér), en þar er rekin þessi flotta ferðaþjónusta. Þótt ég hafi ekið þarna um undanfarin ár hef ég ekki átt því láni að fagna fyrr að ferðast þarna um með leiðsögn. Og einhvern veginn varð þessi sveit bæði fallegri og merkilegri fyrir vikið. Ég fékk líka kynningu á Ölvisholti Brugghúsi (vefsíða hér), sem staðsett er í sveitinni. Brugghúsið framleiðir gæðabjór og flytur 50% af framleiðslu sinni út; aðallega til Svíðþjóðar. |
Myndirnar mínarEldri innlegg
July 2019
Slóð á straum |