Þegar allar þessar milljónir ferðamanna hafa heimsótt landið okkar fagra undanfarin ár; smá safnast upp ferðasögur þeirra á netinu. Sumar eru birtar í myndum, aðrar í textum og svo ennaðrar í kvikmyndaformi. Þetta er orðinn heill hellingur - sem gerir lítið annað en að auglýsa landið okkar enn meira og betur. Það er bráðskemmtilegt að skoða þetta efni og sjá hvernig ferðamennirnir upplifa landið; hvað þeir skoða og hvað þeir segja. Sérstaklega hefur mér þótt merkilegt að fólk skuli koma hér á veturnar. Hér að neðan er stutt ferðasaga ferðalanga sem heimsækja landið í skamdeginu. Áhugavert.
0 Comments
Eitt af því sem mér þykir gaman að gera er að skanna inn gamlar myndir og laga þær til. Hér að neðan er dæmi um fyrir og eftir. Tveir drengir og tveir hundar. Spurningin er hverjir eru á myndinni ?
Anna Björg Ingadóttir heitir kona ein sem hefur undanfarin ár ferðast um Reykhólahrepp og tekið upp myndbönd með viðtölum við íbúa. Hún tekur viðtöl bæði við unga og aldna um allan hreppinn. Myndböndin eru orðin ansi mörg og hafa að geyma ýmsan fróðleik en þó má segja að þau spegli í raun mun frekar samtímann. Afar skemmtilegt og menningarlegt framtak hjá Önnu. Myndböndin eru öll á youtube og hér er slóðin að heimasíðu hennar þar sem myndböndin eru geymd. Og svo að neðan eitt viðtalið: |
Myndirnar mínarEldri innlegg
July 2019
Slóð á straum |