Nú styttist í utanlandsferðina góðu. Við höldum til Slóveníu í næstu viku og höldum til á Portoroz. Við fljúgum frá Akureyri, sem er nýtt fyrir okkur. Portoroz er eiginlega "sólarströndin" í Slóveníu því landið nær ekki að hafi nema á mjög litlu svæði.Við ætlum í þrjár ferðir á dvalartímanum; Króatíu, Feneyja og í hella sem eru víst æðislegir. Stulli verður heima með hundinn, vökvar blómin, passar húsið og tekur á móti gestum.
0 Comments
Brönugras í Kaldalóni Haldið verður upp á hinn samnorræna dag villtra blóma í níunda sinn á Íslandi á þjóðhátíðardaginn, 17. júní. Þann dag er efnt til fjölda fjölskylduvænna plöntu skoðunarferða um öll Norðurlöndin. Allar ferðirnar eru ókeypis fyrir þátttakendur. Í þetta sinn verða fimmtán plöntuskoðunarferðir víðs vegar um landið. Þessi viðburður hafði alveg farið framhjá mér þangað til ég flutti í Dalina. Það hefur nefnilega verið skoðunarferð undanfarin ár á Skarðströndinni og verður nú farið í göngu á Skarðsströndinni í þriðja sinn. Þetta er hið besta framtak Skarðstrendinga. Í auglýsingu segir m.a. að mæting sé kl. 10 að Ytri-Fagradal á Skarðsströnd. Gengið verði upp Nónhlíð á brún Fagradalsfjalls að Nýpurhyrnu. Síðan niður í Nýpurdal og að Nýp. Fjallið er grösugt og úrval plantna að skoða. Auk þess að njóta flórunnar er útsýni yfir Breiðafjörð, fuglalíf og allnokkrar líkur á að sjá haförn. Boðið verður upp á jurtate að göngu lokinni og bílferð til baka í Ytri-Fagradal. Leiðsögn er í höndum Þóru Sigurðardóttur á Nýp og Höllu Steinólfsdóttur í Ytri-Fagradal Það verður að segjast að vorið hefur verið einstakt. Strax í april byrjuðu hlýindi sem hafa nánast verið viðvarandi síðan, ef undanskilin er ein vika í maí. Núna eru Hrafnaklukkurnar í fullum blóma hér í Búðardal og þann 30. maí blés ég biðukollu. Ég er búinn að slá garðinn tvisvar en fyrsti sláttur í fyrra var um 20. júní. Ég setti kartöflurnar ekki niður fyrr en 16.maí (leti) en þær eru flestar komnar upp nú þegar. Með sama áframhaldi verð ég kominn til berja áður en júní er úti.
En svo getur bara komið kalt og blautt sumar - hver veit. |
Myndirnar mínarEldri innlegg
July 2019
Slóð á straum |