Svo mjög er maður einfaldur að ég hélt alveg til 35 ára aldurs að allir hlökkuðu til jólanna. Mig grunaði alls ekki að til væri hópur fólks og það ekki lítill, sem kveið fyrir þessari hátíð. Það er því mjög skrýtin tilfinning að vita til þess að um leið og aðventan hefst og mig fer að hlakka til jóla og áramóta, þá er það sami startpunktur fyrir fjölda fólks í hátíðarkvíða sínum.
Ef jólin eru bæði besti tími ársins og versti tími ársins hjá fólki er algjörlega spurning um hvert meðaltalið er.
0 Comments
Þegar knattspyrnuleikir fara fram hafa margir áhuga á að horfa á þá. Nú er framundan leikur Íslendinga og Tékka og búast má við að margir leggi leið sína á bari, þá sérstaklega svokallaða sportbari.
Á sportbörum eru aðallega karlmenn (konur mæta sannarelga líka), sem horfa á "leikinn" í beinni. Þeir eru oft duglegir að blanda sér í leikinn með sérfræðiálitum og tilfinningarlegri tjáningu. Stundum er bakkus með í leiknum. Niðurstaðan er oft sú að sjónvarpið (skjávarpinn) fær að heyra það. Í raun eru allir, sem tjá sig, meira eða minna að tala beint eða óbeint við sjónvarpið. Það fær hvattningu, leiðsögn og skammir. Jafnvel heilu ræðurnar. Þetta gerir jú aðallega fullorðið fólk. Ég hef tekið eftir því að börn tala yfirleitt ekki við sjónvarpið. Smábörn meira að segja horfa að mestu leiti þögul á sitt barnaefni. Ég reikna með því að ég tali núna á eftir við sjónvarpið, þegar umræddur leikur hefst. Ég ætla bara að vera heima hjá mér. Helst að ég þori svonalöguðu þar. Það eru mikil loftgæði á Íslandi. Íslendingar eru aldir upp við ferskt og hreint loft, sem er ekki sjálfgefið hjá milljónum manna í veröldinni. Því bregður manni nokkuð í brún að búa við mengun sem kemur úr eldgosinu í Holuhrauni. Kannski sérstaklega vegna þess að þetta mengunartímabil hefur varað vikum saman.
Það er alveg hreint magnað í sjálfu sér hvað ein svona hola getur spúið miklu eitri og gasi upp í andrúmsloftið. Mengunin er svo mikil að mörg þúsund ferkílómetra eru mengaðir. Stundum nær mengunin yfir meira en helming landsins. Og ef það hægviðri og kalt þá fer mengunin langt upp fyrir hættumörk. Ég bý langt frá gosstöðvunum, en engu að síður kemur hér iðulega bláleitt mengunarský í austanáttum. Og einu sinni hafa Almannavarnir Íslands sent SMS á íbúa í Dölum og beðið þá að halda sig innan dyra og loka gluggum. Svo mengað var andrúmsloftið. Nú í dag er hvöss NNA átt. Skítköld með slyddu. Ekkert útiveður og eiginlega varla ferðaveður á heiðum. En loftið er hreint. í dag opnar maður glugga og blessar norðanáttina. |
Myndirnar mínarEldri innlegg
July 2019
Slóð á straum |