Ég reikna með því að margir séu sjálfbærir með eitt og annað í kringum stafrænar myndir. Mig langar samt að miðla aðeins af reynslu minni með eitt og annað. Í þessu bréfi ætla ég að fjalla um myndahugbúnað “alþýðunar” eða “viðvaningsins”. Í grófum dráttum er um að ræða tvo ókeypis hubúnaðarvöndla sem hafa það markmið að a) halda utan um myndirnar, b) vinna myndir og laga og c) koma myndum fyrir á Internetinu. Þetta eru Picasa frá Google og Windows Live Photo Gallery frá Microsoft. Báðir þessir hugbúnaðarvöndlar eru mjög góðir og koma að býsna góðum notum. Þeir eru einnig í hörkusamkeppni við hvorn annan.
Picasa. Picasa er trúlega nafn á hugbúnaði sem heyrist mjög reglulega. Í dag er nýjasta útgáfa 3,9 og er sú uppfærsla með miklar tengingar við Google+. Gríðarlegur fjöldi fólks um allan heim notar þennan hugbúnað. Þegar haldin eru námskeið fyrir almenning um stafræna myndatöku er næstum alltaf kennt á Picasa. Hugbúnaðurinn er nægilega góður til að halda utan um stór ljósmyndasöfn. Auðvelt er að leita að myndum og “tagga” þær. Einnig er Picasa með andlitsþekkjara (face detection) , þannig að ef verið er að leita að persónu í öllu 70.000 myndunum þá finnur forritið strax myndirnar af viðkomandi persónu. Mér finnst hinsvegar persónulega möppukerfið í Picasa ekki einfalt. Forritið getur átt talsvert við myndirnar. Það er hægt að breyta lýsingu, kroppa, skerpa, blanda litum og fl. Einnig að losna við rauð augu, setja texta á myndir og margt margt fleira með Picasa 3. Öll myndvinnsla í Picasa er auðveld og einföld. Þegar fyrstu útgáfurnar af Picasa komu út var ekki gert ráð fyrir miklum tilfærslum á Internetið en í nýjustu útgáfunum er mikil áhersla á þessa leið. Google rekur Picasa Webalbum á netinu og þar er hægt að geyma ókeypis talsvert magn mynda. Nú hefur Google verið að blanda google+ inn í þetta og nú heitir hluti þjónustunnar í dag google+ photos. Google+ photos/google webalbum hefur þann eiginleika að hægt er að setja myndirnar á netið í fullri upplausn (það gerir Facebook t.d. ekki). Hægt er að “sinka” albúmin á tölvunni við Google webalbum á netinu með Picasa. Á hinn bóginn er Google ekki að gefa tækifæri á beinum leiðum með myndirnar inn á önnur myndasvæði eins og Flicr eða Shuttle. Facebook er þó möguleiki. Google webalbum er eitt af þeim svæðum á netinu sem geyma hvað flestar myndir í heiminum. Þar er hægt að vera með albumin sín sýnileg öðrum eða bara sýnileg þeim sem á. Umsýslumöguleikar með myndir er nokkrir og Google+ gefur mikla möguleika á miðlun mynda til annarra. Það er ekki óalgengt að notendur gefi Picasa háa einkunn, eða 3,5 – 4 stjörnur enda forritið afar vinsælt. Niðurhal má nálgast m.a. hér http://picasa.en.softonic.com/ Þá er hægt að sjá heilmikið hvernig þetta allt saman virkar með því einu að fara inn á You tube og slá þar inn Picasa. Mörg kennslumyndbönd munu birtast á ótrúlega mörgum tungumálum. Windows Live Photo Gallery Síðasta áratuginn eða svo hefur verið innbyggt í stýrikerfi Windows í meira eða minni mæli umsýslumöguleikar með stafrænar myndir. Árið 2010 setur Microsoft í loftið ókeypis hugbúnað, sem heitir Windows Live. Með þessum hugbúnaði stökk Windows mörg ár fram í tímann. Þetta er pakki með ýmsu góðgæti og þar ber hæst Skydrive, Windows Live Photo Gallery, Windows Live movemaker og Windows Live Mail. Ekki er hægt að nota Windows Live með gömlum stýrikerfum (xp og eldri ganga ekki). Windows Live Photo Gallery (WLPG) er mjög öflugur pakki sem heldur utan um stór myndasöfn og hefur einnig nokkuð öfluga myndvinnslu. Þótt þessi hugbúnaður sé bæði ókeypis og notendavænn með afbrigðum er hann ekki eins vinsæll og Picasa. Trúlega er það vegna þess að lengi vel var Picasa betri. Hugbúnaðurinn er góður til að halda utan um stór ljósmyndasöfn. Auðvelt er að leita að myndum og “tagga” þær. Einnig er WLPG með andlitsþekkjara (face detection) , þannig að auðvelt er að leita að myndum af tilteknum persónum í stórum söfnum. Töggun flyst með myndum í WLPG t.d. yfir í netmyndasöfn (það gerir Picasa ekki). Möppukerfið í WLPG er notendavænt. Forritið getur unnið talsvert með myndirnar. Það er hægt að breyta lýsingu, kroppa, skerpa, blanda litum og fl. Einnig að losna við rauð augu og margt margt fleira með WLPG. Hinsvegar er ekki hægt að setja inn texta og almennt er myndvinnslan takmarkaðri en í Picasa. WLPG er hinsvegar með mikla miðlunareiginleika á Flickr, Facebook og fl. Einn kostur WLPG er að hægt er að “sinka” myndaalbúm við Skydrive sem er þinn eigin harði diskur á netinu. Á Skydrive getur þú geymt myndir, skjöl og tónlist frítt að vild upp að ákveðnum mörkum. Skydrive leifir miðlun og umsýslun mynda þannig að það er ekki galinn staður til að geyma og miðla myndum, þótt hjá Íslendingum virðist hann ekki vera mjög “inn”. Skydrive er hægt að nota sem “dropbox”. Inni á www.live.com er hægt að kynnast þessu betur og hlaða niður foritum. Youtube geymir leiðbeiningar á myndböndum. Ég er með báða hugbúnaðarvöndlana í tölvunni hjá mér. Ég nota Picasa ekkert nema til þess að fylgjast með þróuninni hjá Google. Ég nota hinsvegar Windows Live Photo Gallery að hluta; þ.e. þann hluta sem heldur utan um myndir. Það er til að halda utan um myndasöfnin mín í tölvunni, en ekki að flytja myndir eða vinna þær. Ég nota skydrive til að “sinka” nokkur mikilvæg myndaalbúm beint á netið... þannig að ég á alltaf afrit þar ef eitthvað kemur uppá. Í vinnunni nota ég líka WLPG til að halda utan um myndir. Ég ráðlegg í raun ekkert – báðir þessir vöndlar eru góðir. Picasa er mun vinsælli. Ég hef hinsvegar kosið að nota önnur forrit til að vinna myndirnar. Þannig nota ég eitt forit til að halda utanum þær og nokkur önnur forit til að vinna þær. Kannski meira um myndvinnsluforit síðar.
0 Comments
Ég hef notað daginn í dag í að læra að "tagga" myndir. Myndasafnið mitt í tölvunni telur orðið nokkur þúsund myndir og sífellt erfiðara verður að halda utan um það. Ég hef líka verið latur að útrýma myndum strax og þær eru komnar inn á tölvuna. Ætla alltaf að gera það seinna.
En í dag hófst ég handa við að skipuleggja "tag" lista. Og ég komst líka að því að ég hef skipulagt möppukerfið undir myndirnar kolvitlaust. Þegar maður skipuleggur möppur undir myndir þarf að hafa eftirarandi í huga: a) Ein mappa undir allar undirmöppur með myndum. b) Undirmöppur fá nöfn á viðburðum eða þemum; fjölskyldan, vinir, landslag og framvegis...ekki láta möppurnar heita eftir ártölum eins og ég geri... c) Undir hverri þemamöppu koma svo ártalamöppur. Aðrar reglur sem gott er að hafa í huga eru t.d. : Að ef við erum í vafa hvort við ættum að henda einhverri mynd...þá ættu við að henda henni. Að gefa öllum myndum strax nafn. Að skirfa við hverja mynd eitthvað um hana. En þrátt fyrir góðan dag í þessu er ég alls ekki viss um að mér takist að ná utan um þetta. Hreint út sagt alveg ótrúlega mikil vinna. Þegar maður fer að spá í hagsmunasamtök neytenda þá dettur manni fyrst í hug Neytendasamtökin, enda sá félagsskapur gamall og lengst af sá sem eitthvað vann í hagsmunamálum neytenda.
Ég gerðist síðastliðið haust félagi í Hagsmunasamtökum Heimilinna og hef fylgst með þessum samtökum á vettvangi undanfarna mánuði. Mér er nú alveg ljóst eftir að hafa upplifað kraftinn, áhugan og árangurinn hjá hagsmumasamtökunum - að Neytendasamtökin eru algjörlega steingeld í sambanburði. Því fagnaði ég því að sjá að Hagsmunasamtökin eru að skoða þann möguleika að verða virk í neytendamálum í framtíðinni. |
Myndirnar mínarEldri innlegg
July 2019
Slóð á straum |