Baunagrasið (Lathyrus japonicus) er af ertublómaætt og vex á Íslandi á nokkrum stöðum. Er frekar sjaldgæf jurt sem gaman er að rekast á. Jurtin vinnur köfnunarefni úr andrúmsloftinu með aðstoð gerla í rótarhnúðum og bætir þannig jarðveginn. Hún er landnemi á söndum og þar sem hún nær útbreiðslu skilar hún grænum kringlóttum ræktarblettum í sendnum jarðveginum. Hún nær helst að breiða úr sér þar sem hún fær frið fyrir beit t.d. á Hornströndum og á snjáðum söndum í Öxarfirði og Suðurlandi. Landgræðslan hefur verið að nota jurtina eitthvað í uppgræðslu sanda.
Myndina tók ég á söndunum við Markarfljótið en þar er hún greinilega á nokkrum stöðum. Þetta er mjög sérstök jurt sem skríður um sandana og ber þessi fallegu fjólubláu blóm. Og auðvitað framleiðir hún baunir eins og nafnið og ættin gefur til kynna. Annað alíslenkst baunagras eigum við ekki á Íslandi.
0 Comments
Var á ljósmyndarölti í gær í mynni Laxár í Dölum. Tók þá m.a. þessa mynd af Flaghnoðra. Þegar ég var að vinna myndina og setja hana á Netið datt mér í hug að skoða hvort kominn væri stafrænn plöntugreinir fyrir íslenska flóru.
Svo virðist vera. Genium.is er búið að vinna að stafrænum plöntulykli. Fólk getur hlaðið niður appi í síma sinn eða spjaldtölvur og losnað við að bera bækur með sér út í náttúruna. Þetta er hinsvegar ekki mjög fullkomið. Ég var að vonast til að geta bara tekið mynd af blómi og þá kæmi upp á skáinn heiti þess og allt um blómið...en þannig er það ekki. Blómavinir halda líka úti skemmtilegum vef; www.floraislands.is. Á þessum vef eru sjálfboðaliðar að kortleggja flóru Íslands og geyma gríðarlegt safn upplýsinga á þessum vef.
|
Myndirnar mínarEldri innlegg
July 2019
Slóð á straum |