Þegar við komum til Krítar og fórum niður á strönd fannst mér skrýtið að enginn göngustígur eða gata lá með ströndinni. Það er semsagt ekki hægt að ganga meðfram ströndinni aðeins á henni. Til að komast niður á ströndina fer maður eftir ýmsum göngustígum eða krókaleiðum. Ég merkti strax við þetta atriði með stórum mínus.
En í kvöld hef ég tekið mínusinn úr kladda mínum. Því í staðinn fyrir götu með ströndinni eru þar ýmiss hús; lítil hótel, veitingastaðir, íbúahús og ýmiss þjónusta alveg við fjöruborðið. Og í kvöld sátum við Gugga við lítið borð undir laufþaki á veitingastað meter frá sandinum á ströndinni og horfðum á sólarlagið og léttan öldudans. Öllu er gefinn sinn tími. Við fljúgum heim í nótt. Góða Krít verður vel geymd og seint gleymd.
0 Comments
Leave a Reply. |
Myndirnar mínarEldri innlegg
July 2019
Slóð á straum |