Maður býr að því að hafa búið á nokkrum stöðum á landinu. Á Siglufirði átti ég heima í sex góð ár. Þar kynntist ég afar sérstakri jólahefð. Ég var búinn að vera tvö ár skólastjóri þar þegar ég áttaði mig á því að gömul hefð var fyrir þvi að á aðfangadag, voru öll ljós kveikt í skólanum. Skólabyggingarnar voru tvær og gilti það sama um þær. Hvert einasta rafljós var kveikt yfir jólin (aðfangadag, jóladag og annan í jólum). Þetta virkaði í fyrstu hálf "aumingjalegt" á mig. Engin jólaskreyting eða seríur, bara allt kveikt og uppljómað með venjulegum flúorljósum. Síðar fannst mér þetta afar hátíðlegt þegar ég ók rétt fyrir kl. 18.00 í kirkju á aðfangadagskvöld og sá skólann "minn" uppljómaðan. Hann var uppljómaður þótt enginn væri þar. Bara tákrænt hvítt ljós sem flæddi endalaust út um alla glugga. Yndisleg hefð sem Siglfirðingar eiga sér þarna.
1 Comment
Steinunn Matthíasdóttir
23/8/2013 02:00:58 pm
Sæll Lói.
Reply
Leave a Reply. |
Myndirnar mínarEldri innlegg
July 2019
Slóð á straum |