Hvað ætli nútímamaður þurfi að muna mörg pinnúmer/lykilorð ? Og þá á ég við ef gengi er útfrá því að fyllsta öryggis sé gætt, þ.e. noti ekki alltaf það sama. Reyndar er ég alveg viss um að næstum allir einfalda sér málið og nota sama pinnúmerið/lykilorðið að einhverju leyti. Nú er það reyndar svo að þessi auðkenni eru misflókin. Sum eru bara 4 stafir, önnur 6 stafir og allveg upp í 8 stafir. Stundum þarf að blanda saman táknum, litlum stöfum, hástöfum og númerum að einherju leyti....sem kemur heilmikið í veg fyrir að maður geti almennilega búið sér til minnisstætt auðkenni.
Jæja hvað þarf ég að muna mörg númer/lykilorð: Netbanki...sjálfur Netbanki ...UDN Kreditkort Debitkort sjálfur Debitkort UDN Skatturinn einkanetfang nr. 1 einkanetfang nr. 2 Vinnunetfang GSM pin. weebly - vefsíðan ljósmyndavefur - Flikr Íbúagátt Dalabyggðar Vinnan - kerfi til að árita reikninga Vinnan - tölvukerfið Vinnan - vefkerfi Rauðikrossin - sjálfboðaliðavefur Frímúrarar - félagsvefur Myndvinnslan picmonkey Live drive - tölvuský fyrir heimilið og síman. Vinnan - gátt hjá ráðuneytinu Vinnan - Mentor upplýsingavefurinn Aðgangur - fartölvan mín ....og eflaust miklu miklu fleiri. Enda stend ég reglulega á gati og er að láta senda mér þetta. Veit þá ekki hvar best er að geyma svona upplýsingar....alltaf að vera að segja ....legðu pinnið á minnið. Jú...eins og allir ...þá er það einmitt það sem ég geri.
0 Comments
Leave a Reply. |
Myndirnar mínarEldri innlegg
July 2019
Slóð á straum |