Þegar niðurstöður á lestri dagblaða eru skoðaðar kemur í ljós greinileg þróun; nánast öll blöð glíma við minni lestur ár frá ári. Dagblöð eru smátt og smátt á undanhaldi. Sérstaklega á þetta við dagblöð í áskrift. Þetta er sama þróunin og er í öðru prentuðu efni. Rafbækur eru á uppleið og venjulegar bækur á útleið. Rafræna byltingin tekur yfir þetta svið eins og mörg önnur.
Aðeins eitt dagblað (ef það er þá dagblað) er ekki að tapa lestri. Það er Fréttatíminn, sem kemur bara út um helgar. Morgunblaðið (í dag oft nefndur Davíðssálmarnir) hefur misst mikið frá 2007 og nær athygli um 30% landsmanna. Það segir þó ekki alla söguna því aðeins 7 % landsmanna lesa bara Moggann. Það verður að segjast að er ótrúlega lág tala. Þeir sem lesa og kaupa Moggann sem málgagn eða að því að þeim finnst það besta blaðið....eru orðnir sárafáir. Flestir sem lesa Moggann á annað borð, lesa önnur blöð líka og þá oftast Fréttablaðið. En þótt Mogginn hafi tapað hratt lestri á prenti rekur hann samt sterkan vefmiðil; www.mbl.is er enn vinsælasti fréttavefur landsins. Vefurinn rekur ekki harða pólitíska stefnu eins og Mogginn sjálfur. Þar eru ekki leiðarar, Reykjavíkurbréf og pólitísk viðtöl. Þar má hinsvegar finna vítt litróf bloggara. Hann höfðar því til mun víðari hóps en prentmiðillinn. Öll íslensku dagblöðin eiga eftir að hætta útgáfu dagblaða og sitja á endanum uppi með vefmiðla eingöngu. Þau dagblöð sem fyrst þurfa að gera það....eru kannski bara eftir allt að verða fyrst inn í framtíðina. Mogginn er ekki dauður....Mogginn er í umbreytingarferli fyrir nýja tíma.
0 Comments
Leave a Reply. |
Myndirnar mínarEldri innlegg
July 2019
Slóð á straum |