Þá er ég búinn að nota Linux stýrikerfi (Ubuntu) í rúma 4 mánuði á heimilistölvunni minni. Það hafa komið upp ýmiss vandkvæði en öll hafa þau verið yfirstigin. Vissulega hafa komið stundir þar sem ég hef verið við það að hætta þessu og kaupa windows 8 á vélina en alltaf þrjóskast aðeins lengur við. Og vissulega er það mikil og góð tilfinning þegar tekst að finna lausnir. Þetta er því búið að vera lærdómsríkt tímabil því talsverður munur er á Windows og Linux...svona þegar á reynir.
Ubuntu linux er mjög traust stýrikerfi og hefur aldrei frosið eða krassað á neinn hátt. Það vinnur líka hratt og ræsing er t.d. unaðslega stutt. Það er mjög notendavænt og auðvelt að læra á það í grunninn. Hinsvegar flækjast málin þegar kemur að því að tengja réttu drivera við jaðartæki og að uppfæra hugbúnað og framvegis. Þá verður að segjast að stór hluti af hugbúnaðinum sem er í boði fyrir Ubuntu er hálfgert drasl. Hinsvegar er til mjög góður hugbúnaður fyrir flest sem maður þarf að gera. Góður vafri (firefox), góður office (libre office) vöndull og gott myndvinnslutól (gimp). Til að finna eitthvað sérhæfðara þarf stundum að leita vel. Ég var t.d. lengi að finna góðan hugbúnað sem hélt utanum myndasöfn. Windows er betra og þróaðra stýrikerfi. En það kosta líka að eiga það og því fylgja vírusar og mikil minnisnotkun á vélbúnaði. Ubuntu kostar ekki krónu og gerir eldri tölvur að öflugum vinnuhestum. Og eftir því sem ég læri að bjarga mér meira sakna ég Microsoft minna og minna....en ég er enn Windowsmaður í vinnunni.
0 Comments
Leave a Reply. |
Myndirnar mínarEldri innlegg
July 2019
Slóð á straum |