Stórmarkaðir eins og Bónus, Nettó og Krónan leggja sig fram um lágt vöruverð. Þessir aðilar auglýsa nokkuð til að laða okkur inn í verslanirnar. Þangað erum við velkomin til að gera okkar innkaup.
En um leið og við erum búin að tína allar vörurnar uppá kassaborðið og færibandið farið að rúlla með þær, líður okkur flestum ekki lengur eins og við séum velkomin. Nei þvert á mót fer okkur að líða eins og við séum fyrir. Eins og búðin vilji losna við okkur eins fljótt og auðið er eftir að við erum búin að borga. Röðin er oft löng og hún þarf að ganga hratt - ekki viljum við tefja. Eða hvað ? Við hömumst við að troða í poka í kapphlaupi við færibandið sem eys í okkur vörunum. Aðeins rétt á meðan við borgum stoppar bandið. Svo fer það aftur að stað og nú fyrir nýjan viðskiptavin sem þarf að troðast fram úr okkur til að komast að við að setja í sína poka. Stundum er byrjað á þriðja viðskiptavinum ef hinir eru seinir og ýtir þá kassastarfsmaðurinn vörunum til okkar, svona eins og rusli sem er fyrir, til að skapa þriðja plássið á kassanum. Dæmigerð pressa, dæmigerð skilaboð um að maður sé seinn, óhæfur og fyrir öllum. Þessi einkennilega tilfinning flótta og skammar sem fólk fær á kössum í lágvörumörkuðum er allmörgum kvíðvænleg. Og stundum eru aðstæðurnar þannig að enn meiri streyta skapast; t.d. grátandi börn, eldri borgarar sem eru orðnir svifaseinir eða sérvitringar sem koma bara með klink til að borga með, fólk sem vill skila vörum eða láta hlaupa eftir annarri og svo framvegis. Já kæru lesendur... þetta er kassaótti. Hræðslan við að tefja og skorturinn á hugreki til að taka allan sinn tíma til raða í poka, borga og spjalla við afgreiðslumanninn um vöruverð, neytendavernd, gengismál, enska boltann og Senso kaffi. Ef allir gerðu það myndu raðirnar að sjálfsögðu lengjast og þá annað tveggja gerast að fólk hætti að nenna í búðina eða hún fjölgar kössum. En einfaldasta leiðin til að losna við kassaóttann er að fara í dýrari eða minni búðir þar sem þjónustan er brosandi og persónulegri.
0 Comments
Leave a Reply. |
Myndirnar mínarEldri innlegg
July 2019
Slóð á straum |