Ég hóf ömulega vinnu í fyrir nokkrum dögum. Þá ákvað ég að fara í gegnum nokkra kassa (13) af bókum, glósum, blöðum og myndum. Ég er að komast í gegnum þetta, en þetta hefur tekið sinn toll.
Ég nefnilega þoli ekki að henda bókum, það er einhvernveginn jafn rangt í huga mér eins og að berja fólk. Og nú er ég búinn að henda og henda og henda. Vinnan vatt upp á sig og ég fór líka í gegnum það sem í hillum og bókaskápum er hjá mér. Fór í dag með 6 kassa í rulsið á gámasvæðinu. Og enn er ég að henda. Þannig að í raun er ég þjakaður sektarkennd líkt sá sem horfir yfir sviðið eftir að hafa barið fjölda manns í hausinn með buffhamri. Ég hef virkjað ill öfl í mér. Blessuð bókin hvers á hún að gjalda. Griðarstöðum hennar fækkar með hverju árinu. Og nú er ég líka fallinn - farinn að henda út og suður og get ekki hætt. Drottinn minn verð ég ekki að fara að sækja AA fundi eða eitthvað ? Hjálp !
0 Comments
Leave a Reply. |
Myndirnar mínarEldri innlegg
July 2019
Slóð á straum |