Rykagnir í andrúmslofti eiga sér ólíkan uppruna, til dæmis jarðvegsagnir sem vindurinn feykir upp, efni sem koma upp í eldgosum eða mengun frá iðnaði. Fleiri þættir leggja til ryk í andrúmsloftið og þar með það ryk sem við sjáum inni hjá okkur. Má þar nefna umhverfið í kringum hús, til dæmis hvort mikið er af sandi eða mold sem getur borist inn. Einnig skiptir máli hversu mikil bílaumferð er þar sem ökutæki skila bæði ögnum út í andrúmsloftið við bruna og losa einnig um efni í slitlaginu sem berast inn í hýbýli. Hvort einhver vinna fer fram í nágrenninu, svo sem gatnaframkvæmdir, skurðgröftur eða bygging eða lagfæring húsnæðis hefur líka áhrif á hversu mikið ryk er í kringum okkur.
Mörg efni sem valda vanlíðan geta verið í lofti innandyra. Í ryki í húsum er að finna húðfrumur, örverur, gró, dýrahár og fleiri agnir. Utan á rykagnirnar festast svo rökgjörn efni sem gufa frá byggingarefnum, innréttingum, húsgögnum, textilvöru og gólfteppum auk hreinsiefna, ilmefna og fleiri efna sem er að finna á heimilum í dag. Það sem líklega skiptir mestu máli er að húsryk inniheldur í flestum tilvikum talsvert af rykmaurum, rykmauraskít, leifar eftir hamskipti og leifar dauðra maura. Í meltingarfærum rykmaura eru prótein sem valda ofnæmi og er mikið af þeim í skít mauranna. Um 90% af þeim sem eru með ofnæmi fyrir húsryki eru með ofnæmi fyrir rykmauraskít.
0 Comments
Leave a Reply. |
Myndirnar mínarEldri innlegg
July 2019
Slóð á straum |