Það er gaman að fylgjast með samkeppninni á markaði myndvinnslutóla fyrir tölvur. Samkvæmt könnunum hefur Adobe verið að tapa markaðshlutdeild smátt og smátt eins og sjá má hér. Engu að síður er fyrirtækið með mikla yfirburði á þessum markaði. Þegar hinsvegar er skoðað niðurhal t.d. á vefnum download.cnet.com sést hversu frítólin tvö; Photo Scape og Gimp hafa góða stöðu. Þetta eru ólík tól; PhotoScape er frekar einfallt kröftugt tól til að vinna ljósmyndir meðan Gimp er fyrir flóknari og nákvæmari vinnu, sköpun og breytingar í allri myndvinnslu. Bæði tólin eru fáanleg fyrir MAC og Windows. Svona líta teljarirnir á niðurhali út hjá Cnet þann 14.12.2013.
Windows MAC Samtals PhotoScape 44.449.826 10.211 44.460.037 Gimp 3.623.306 442.231 4.065.537 Photoshop 1.221.563 4.476.651 5.698.214 Ég er náttúrulega himinlifandi yfir þessu, því þetta eru þau tvö myndvinnsluforrit sem ég nota mest. Gimp er þar að auki langmest notaða myndvinnslutólið í lynux stýrikerfinu, en yfir það er ekki gott að finna opinbergar tölur um niðurhal en eflaust færir það Gimp upp að hlið Photoshop. En lang, lang vinsælasta myndvinnsluforitið þessa dagana er samt bara til fyrir Windows og heitir IrfanView. Forritið hefur verið halað niður 70.000.000 sinnum á Cnet !!
0 Comments
Leave a Reply. |
Myndirnar mínarEldri innlegg
July 2019
Slóð á straum |