Mér skilst að fólki sem horfir á sjónvarpsfréttir fækki stöðugt. Einnig fólki sem hlusti á útvarpsfréttir. Ekkert af börnunum mínum sest niður til þess að fylgjast með fréttum í sjónvarpi eða útvarpi. Algjörlega hrein kynslóðaskipti í þessu.
Þessi þróun er svo sem skiljanleg. Allar fréttir í þessum miðlum er gamlar miðað við fréttaveitu á Netinu. Það er t.d. oftast hrein endurtekning að fylgjast með kvöldfréttum í sjónvarpi. Allt búið að koma fyrir sjónir manns á Netinu og það stundum oft. Ég finn að hjá sjálfum mér er minni og minni þörf að fylgjast með fréttum í útvarpi eða sjónvarpi. Nú eru farin að koma heilu dagarnir og vikurnar sem ég nánast fylgist ekkert með þessum miðlum. Helst að maður hlusti á fréttir í bíl. þannig að kannski tilheyri ég breytingakynslóðinni. Kynslóðinni sem kynntist tölvum um tvítugt og reynir að fylgja tæknibreytingum eftir það.
0 Comments
Leave a Reply. |
Myndirnar mínarEldri innlegg
July 2019
Slóð á straum |