Ég hef oft velt því fyrir mér að vera með eigin vefsíðu en alltaf horfið frá því. Samt hef ég gert það í nokkrum tilvikum; t.d. þegar ég þurfti að miðla upplýsingum vegna MPA ritgerðarinnar minnar. En hingað til hef ég látið bloggið duga og svo verið með myndasíðu á Flickr.
Ástæður þess að ég ræðst í þetta núna eru eftirfarandi: - Núna eru vefsíðukerfin að verða sífellt viðmótsþýðari og þægilegri með hverju árinu sem líður og bjóða á einfaldan hátt upp á meðhöndlun frétta, mynda og fl. ásamt tengimöguleikum við samskiptasíður eins og Facebook. Það hefur aldrei verið auðveldara að búa til vefsíðu. - Facebook hefur orðið aðalsamskiptakerfið á Netinu með þeim afleiðingum að bloggsamfélög eru að verslast upp. Moggabloggsamfélaginu hrakar með hverju árinu; bloggurum og heimsóknum á blogg fer þar fækkandi. Bloggarar, sem enn þrauka eru að mestu leyti pólitískir og einsleitir. Langar ekki að búa með þeim lengur. - Á eigin heimasíðu er hægt að tengja saman myndir, texta og blogg. Það er miklu meira frelsi með að vinna með viðmót, útlit og efni. Þannig verður öll vinna við slíka síðu meira skapandi en venjulegt blogg. Ég vil frelsið. Gallarnir við eigin heimasíðu eru helst þeir að þar má búast við minni umferð lesenda en í bloggsamfélaginu. En engu að síður ætla ég að láta á þetta reyna.
0 Comments
Leave a Reply. |
Myndirnar mínarEldri innlegg
July 2019
Slóð á straum |