Sýkla og gerlaheimurinn á jörðinni er billjónum sinnum stærri en heimur mannanna, og skiptir engu þótt hver mannsfruma sé meðtalin. Það er því mikil óskhyggja að láta sig dreyma um að ráð yfir þeim heimi öllum,
segir heimilislæknirinn Vilhjálmur Ari Arason sem hefur rannsakað og skrifað um sýklaónæmi sl. tvo áratugi. Hann bætir við að heilbrigðisyfirvöld víða um heim hafa nú miklar áhyggjur af vaxandi þróun sýklaónæmis helstu sýkingarvalda mannsins. Í yfir 80 ár höfum við haft góð vopn, sýklalyfin, gegn þessum helsta óvini mannsins, bakteríusýkingunum. Þökk sé læknavísindunum sem lengt hafa þannig meðalaldur mannsins meira en nokkuð annað. En vopnin hafa verið ofnotuð og eru því mörg hver hætt að bíta. Vilhjálmur bendir á að engin tímamóta sýklalyf til almennrar notkunnar hafi komið fram í meira en 40 ár. Þá styttist óðum í þann veruleika sem var fyrir tíma sýklalyfjanna þegar þriðjungur þeirra dó sem fékk t.d. slæma lungnabólgu. Í dag þurfa þannig þúsundir barna á Íslandi hæstu skammta af sýklalyfjum gegn venjulegum eyrnabólgum, og jafnvel sterkustu sýklalyf sem völ er á í æð eða vöðva á sjúkrahúsi til að ráða niðurlögum sýkinga sem vel gekk að meðhöndla heima með mixtúrum í venjulegum skömmtum fyrir ekki svo löngu síðan. Ástæðan fyrir þessu er að sýklalyf hafa í gegnum árin verið notuð of oft jafnvel af litlu sem engu tilefni. Vilhjálmur hefur skrifað um sýklaónæmi helstu sýkingarvalda barna á Íslandi sl. tvo áratugi og þá hefur hann rannsakað sýklalyfjaónæmi í meira en áratug. Hann segir vandann liggja fyrst og fremst í verklagi heilbrigðisþjónustunnar. Þar sé megináhersla lögð á vakt- og skyndiþjónustu í stað heildstæðrar gæðaþjónustu vegna lýðsjúkdóma. Í raun er talið að yfir 50% ástæðna allra komu barna til heilbrigðisþjónustunnar sé tengt eyrnabólgu eingöngu [...] Í allt of mörgum tilfellum fær skjólstæðingur sýklalyf við vandamálum sem tengist vægum öndunarfærasýkingum og jafnvel bólum. Vilhjálmur segir að vegna undirmönnunar í heilsgæslunni á daginn þurfi vaktin að vera margföld á kvöldin. Þetta sé alvarlegur skipulagsvandi sem þurfi að leysa en hann vill meina að vegna hans sé skyndilausnum m.a. oftar beitt í heilbrigðiskerfinu.Viðbrögð heilbrigðisvalda við gagnrýninni hafa verið lítil. Svo virðist að láta eigi enn frekar reyna á lögmál Darwins, að þeir hæfustu munu lifa. Öll greinin hér.
0 Comments
Leave a Reply. |
Myndirnar mínarEldri innlegg
July 2019
Slóð á straum |