Brönugras í Kaldalóni Haldið verður upp á hinn samnorræna dag villtra blóma í níunda sinn á Íslandi á þjóðhátíðardaginn, 17. júní. Þann dag er efnt til fjölda fjölskylduvænna plöntu skoðunarferða um öll Norðurlöndin. Allar ferðirnar eru ókeypis fyrir þátttakendur. Í þetta sinn verða fimmtán plöntuskoðunarferðir víðs vegar um landið. Þessi viðburður hafði alveg farið framhjá mér þangað til ég flutti í Dalina. Það hefur nefnilega verið skoðunarferð undanfarin ár á Skarðströndinni og verður nú farið í göngu á Skarðsströndinni í þriðja sinn. Þetta er hið besta framtak Skarðstrendinga. Í auglýsingu segir m.a. að mæting sé kl. 10 að Ytri-Fagradal á Skarðsströnd. Gengið verði upp Nónhlíð á brún Fagradalsfjalls að Nýpurhyrnu. Síðan niður í Nýpurdal og að Nýp. Fjallið er grösugt og úrval plantna að skoða. Auk þess að njóta flórunnar er útsýni yfir Breiðafjörð, fuglalíf og allnokkrar líkur á að sjá haförn. Boðið verður upp á jurtate að göngu lokinni og bílferð til baka í Ytri-Fagradal. Leiðsögn er í höndum Þóru Sigurðardóttur á Nýp og Höllu Steinólfsdóttur í Ytri-Fagradal
0 Comments
Leave a Reply. |
Myndirnar mínarEldri innlegg
July 2019
Slóð á straum |