Það var þreyttur og þjakaður strokufangi sem bankaði upp á bóndabæ ofarlega í Þjórsárdal. Þar var honum boðið í hús, eftir að hann samþykkti að koma ekki vopnaður inn. Var hann þar í spjalli við bónda meðan hann át af hangketi og súpu eins og hann gat. Svo kom lögreglan með piparúða og kylfur einar að vopni og sótti fangann.
Á sama tíma berast fréttir frá byssuóðu fólki í Bandaríkjunum. Þar gildir að bregðast við sérhverri ógn með byssu og lögð er rík áhersla á að öryggi sé tryggt með almennri skotvopnaeign. Í kjölfar hræðlegra morða í barnaskóla nýverið er rætt um nauðsyns þess að barnakennarar gangi um vopnaðir. Ég er voðalega hræddur um að strokufanganum hefði aldrei verið boðið í mat á bandarískum bóndabæ. Hann hefði verið löglega skotinn af færi. Á Íslandi virkaði hangikjötið.
0 Comments
Leave a Reply. |
Myndirnar mínarEldri innlegg
July 2019
Slóð á straum |