Ég var aðeins að skoða ferðir með Norænu á netinu. Ég sé að allar káettur eru núna með sturtu og baði. Það minnti mig á það ótrúlega ferðalag sem við Gugga fórum 1996, en þá fórum við með þrjú lítil börn, bíl og tjaldvagn til Danmerkur og Noregs. Börnin voru 3., 5 og 7 ára gömul og við vorum mánuð á ferðalagi. Ótrúlegt að við skyldum láta okkur detta þetta í hug.
Eitt af því sem var mjög eftirminnanlegt voru ferðirnar með Norænu. Ég man t.d. að ég ákvað að fara með strákana; Stulla (3) og Kela (5) í sturtu. Það var sérstakur baðsalur á þilfariu til þess. Þetta gekk brösulega því veltingurinn var svo mikill, við blautir og gólfin hál. Ég reyndi að halda drengjunum til skiptis meðan ég steig ölduna og vaskaði mér og þeim. Meðan ég þvoði öðrum varð hinn að gera svo vel að hanga stiltur og kyrr á handföngum sem staðsett voru við veggina. Þau voru öll voru svo hátt uppi að Stulli litli beinlínis hékk á því. Eftir bras og soldinn grát aumkaðist að lokum góðlegur Dani, sem var að raka sig við vask, yfir mig og leit til með Stulla meðan við Keli kláruðum þvottinn. Ég held að báðir drengirnir hafi dottið nokkrum sinnum á meðan á öllu þessu stóð og ég var rosalega feginn að komast burtu með alla óbrottna.
0 Comments
Leave a Reply. |
Myndirnar mínarEldri innlegg
July 2019
Slóð á straum |