Það er eitthvað tregafullt við það að horfa á eftir fuglum og blómum þegar hausta tekur. Ég fylgist því grant með hvaða blóm lifa eitthvað fram á haustið. Reydar tek ég vel eftir því líka hvaða blóm koma fyrst á vorin.
Nú í byrjun október eru fimm vilt blóm enn í að blómstra á leið minni frá heimili að skóla:
Þá er Ramfangið í garðinum hjá mér þrælfallegt og í háblóma. Rósin blómstrar enn undir stofuglugganum og einhver blóm sem ég þekki ekkert eru líka enn að. Í fyrra stóð einstaka Vallhumall fram í nóvember og Tamfangið stóð í blóma til 20. nóvember. Ég man að þegar ég var að athuga þetta fyrir ca. 20 árum á Reykhólum náði Vallhumallinn ekki alltaf að blómstra fram í október. Svo er það vorið...maður fer svona eftir jólin að bíða spenntur eftir því. Nú síðasta vor tókst mér að borða í mars alveg sallafínar hundasúrur. Það hefur einu sinni gerst áður.
0 Comments
Leave a Reply. |
Myndirnar mínarEldri innlegg
July 2019
Slóð á straum |