Það er búið að vera bæði fremur kalt vor og kalt sumar það sem af er hér í Dölum. Stuttleg könnun mín á berjasprettu í fyrradag leiðir í ljóst að hér eru krækiberin minnst hálfum mánuði seinna á ferðinni en síðastliðin þrjú til fjögur ár. Hinsvegar er bara nokkuð þokkalegt af þeim... myndi segja að von sé á meðalberjasprettu. Bláberin eru kannski enn seinna á ferðinni en nokkuð meira af þeim en ég átti von á. Undirbúningur Bláberjadaga á Súðavík er hafinn og verða þeir helgina 16 - 18. ágúst. Sjá vef. Spurning að einhverjir brjálaðir berjavinir í fjöldkyldunni fari nú í pílagrímsferðina. Þá vek ég enn athygli á frábærum vef Berjavina...www.berjavinir.com sem hefur verið uppfærður og er nú enn glæsilegri.
2 Comments
12/7/2013 02:01:58 am
Ef berin lukkast ekki í Dölunum þá er eina ráðið að skreppa til Súðavíkur. Þar er pláss fyrir brjálaða sem óbrjálaða. Til hamingju annars með vefinn, stórgóður.
Reply
13/7/2013 10:31:17 pm
Sæll aftur Eyjólfur.
Reply
Leave a Reply. |
Myndirnar mínarEldri innlegg
July 2019
Slóð á straum |