Við skelltum okkur í ferð í gær til eyjunnar Gramvousa og nágrennis. Þetta var ferðalag með skipi, sem ekki virtist hafa þá stærð til að bera að geta gleypt ferðamenn úr 20 stórum rútum. En gerði það samt og með þeim afleiðinum að nokkuð þétt var setinn bekkurinn um borð. Við Gugga tryggðum okkur sæti við borð, þar sem við vorum varin sólinni og það gerði líka hópur af grískum kvennfélagskonum á okkar aldri. Þær röðuðu sér allt í kringum okkur og varð hávaðinn fljótlega mun meiri en í hátölurum skipsins. Virtust þær hækka sig hver á móti annarri þar til ekki heyrðis mannsins mál. Þær grísku voru með litlar töskur með sér sem á einhvern dularfullan hátt rúmuðu allt þeirra nesti, baðföt, vatn og fleira. Heilt heimili eiginlega. Þær drifu úr töskum sínum ýmislegt á borð skiptu á milli sín og deildu. Hver og ein varð að smakka eitt kex hjá hverri og prufa sultu hjá annari og ég veit ekki hvað og hvað. Stóð þetta yfir um drjúga stund með miklu handapati og orðræðu. Var engu líkara en maður væri staddur á markaði um stund. Þegar þessu lauk tóku við sígarettureykingar – en allar reyktu. Næstum í takt. Fór nú að hvessa þegar skipið var komið lengra á haf út, sem var blessunarlega gott vegna reykingana. En hinsvegar fór allt hár þeirra kvenna úr skorðum enda flestar síðhærðar. Fauk það til hliðar og stóð lárétt fyrir andliti næsta manns. Fyrir mínum vitum flykksaðist fremur brúnleitt hár og gat maður fundið af því lyktina af öllu Grikklandi. Áður en maður vissi af höfðu kvennfélagkonur dregið ljósblá teppi úr undraverðum galdratöskum sínum til að ofkælast ekki. Allt í einu bærði á sér vera í einu horninu; reyndist það vera þeldökkur og spikaður grillmeistari, sem ók nú tveimur stórum grillum inn í borðsalinn. Grillaði þessi maður samfleytt í nokkrar klukkustundir með tilheyrandi reyjarmekki um allt. En öllu þessu lauk nú þegar við stigum í land í eyjunni. Já minnisstæð ferð. Og við sátum á öðrum stað á bakaleiðinni. Myndin er tekin af fallegri strönd sem Gugga baðaði sig á meðan ég gekk upp í kastala á eyjunni.
0 Comments
Leave a Reply. |
Myndirnar mínarEldri innlegg
July 2019
Slóð á straum |