Okkur hefur ekki enn tekist að panta okkur mat sem ekki bragðast vel. Ég er búinn að vera duglegur að prufa lambakjötið og hef ekki orðið fyrir vonbrigðum. Hér er blessað lambið borið fram í allskonar búningi; jógúrtsósu, tómatsósu og í grænmetisjafningi fl. og fl. Ég er líka hrifinn af ávöxtunum sem maður kaupir; þeir bragðast einhvernveginn allir í öðru veldi hér. Við höfum ekki keypt okkur eitt einasta nammi né snakk eða drukkið einn kaffibolla. Þetta er algjör nýung af okkar hálfu. Erum þess í stað að háma í okkur vínber, kirsuber og guð má vita hvað sumt af þessu heitir. Svo er það bjórinn. Því miður er hann ekki að mínu skapi. Hér er eiginlega bara boðið upp á fjóra bjóra á veitingastöðum (finna má fleiri í verslunum) Mythos (grískur), Amstel, Heineken og Corona. Ferlega furðulegt að rekast á Corona á öllum veitingastöðum en ef ég man rétt þá er sami eigandinn af þessum þremur. Grísku bjórarnir eru líkir Corona... framleiddir til að drekka sem kaldir freyðandi svaladrykkir. Bragðlitlir og ofkældir. Vanalega er manni boðið upp á frosið eða ísað bjórglas. Rosa flott... en skemmir alveg allt annað. Best að bíða meðan hann hitnar og drekka hann svo. En að myndinni. Þennan bjór fann ég í verslun og gat ekki stillt mig um að prufa hann. Og viti menn hann er alls ekki verri en þessir grísku ofkældu bjórdrykkir. Svo koma nú Bónus....flytja hann inn !! Okkar vantar óóódýran bjór ...
0 Comments
Leave a Reply. |
Myndirnar mínarEldri innlegg
July 2019
Slóð á straum |