Eitt af því sem fer alltaf jafnmikið í taugarnar á mér er hugtakið "þynningarsvæði". Þetta er tiltölulega nýtt hugtak í landsmálaumræðunni en þó orðið nokkurra áratuga gamalt. Þynningarsvæði er skilgreint svæði kringum mengandi starfssemi þar sem mengum má fara yfir heilsufarsleg mörk. Nær eingöngu er að ræða svæði í kringum stóriðju og jarðhitavirkjanir.
Þynningarsvæði eru hugsuð fyrir mengandi og hættuleg efni að "þynnast" á. Til dæmis þegar útblástursefni í lofti eru komin útfyrir svæðið er það ekki lengur yfir hættumörkum. Á mannamáli er þetta einfallt: Samkvæmt lögum fær ákveðin starfssemi leyfi til að menga jarðveg, gróður og vatn á ákveðnum svæðum á Íslandi. Önnur lög um heilbrigði og hollustuhætti banna svo íbúðabyggð inni á þynningarsvæði. Þynningarsvæði eru því ekkert annað en menguð og hættuleg svæði. Svæði sem bannað er að búa á. Svæði sem grasbítar eiga ekki að vera á og svæði sem ekki er hægt að nýta uppskeru. Svo hættum að kalla þetta þynningarsvæði og köllum þetta réttu nafni: Mengað svæði.
0 Comments
Leave a Reply. |
Myndirnar mínarEldri innlegg
July 2019
Slóð á straum |