Ég hef oft velt því fyrir mér hvaða áhrif gott útsýni hafi á líðan fólks. Ég hef séð það einhversstaðar um arkitektúr að nemendum í skóla gekk betur að læra þeim megin í skólanum sem sem var útsýni út á skólalóðina. Það virðist skipta máli hvort þú hefur líf, landslag og gróður annarsvegar eða steinsteypu og götur. Þannig er útsýni misheilsuvænt. Eða með öðrum orðum; holt útsýni kveikir jákvæðar hugsanir og tilfinningar og gefur færi á að slaka á og endurnærast.
Hér í húsin í Búðardal er ég með ansi gott útsýni. Fjörð, fjöll, gróður, fjöru og fuglalíf. Meinholt alveg örugglega. Svo er það spurningin hvort gott útsýni þurfi bara að vera fyrir hendi og að nóg sé a reka í það augun, eða hvort maður þarf að gefa sér tíma til þess að njóta þess. Svo venst útsýnið líka...
0 Comments
Um daginn fékk ég tölvupóst frá www.befunky.com þar sem ég er minntur á að ef ég geri ekki ráðstafanir verði gjaldfærðar á mig 3000 kr árgjald. Ég var ákveðinn að muna eftir því að skrá mig út og hætta þarna í áskrift.
En auðvitað gleymdi ég því. Ég fór í gær aðeins að skoða vefinn, sem er hannaður til að vinna með ljósmyndir, og mér til mikillar gleði er ég bara nokkuð ánægður með að hafa gleymt þessu. Vefurinn er orðinn ansi skemmtilegur og það ættu allir sem áhuga hafa á að laga myndirnar sínar aðeins til en telja sig hafa litla kunnáttu að drífa sig þarna inn og hefjast handa. Það er sáraeinfallt og kostar ekki neitt. Það er hægt að borga til að fá fleiri verkfæri í hendur. Svo nú er tækifærið. Vinna myndir í www.befunky.com ! Ég fer reglulega í sund og mér finnst sundið gera mér mjög gott. Vegna þessa hef ég líka gaman af því að prufa nýjar sundlaugar. Um helgin tókst mér að synda á tveimur nýjum laugum á Suðurnesjum.
Á laugardagsmorgun fór ég í sundlaugina í Sandgerði. Hún leit vel út á myndum en stóð ekki alveg undir væntingum. Sturtan var til skiptis volg og köld, það vantaði krossmerkingar á bakka sundlaugarinnar (svo maður syndi ekki á bakkan) og ekki voru heldur neinar brautir til að brjóta niður ölduna. Hinsvegar var gufan frábær og pottar góðir. Á sunnudagsmorgun komst ég svo í laugina í Vogum á Vatnsleysuströnd. Hún var öll hin snyrtilegasta og ekki hægt að finna þar neina galla. Gott að synda og allar merkingar til staðar, pottur þægilegur og sturtur heitar. Mæli með þeirri laug á góðum sumardegi, því skjólið og umgjörðin um laugina er einstök. Ég hef verið að horfa á kosningaþættina á RÚV. Ég verð að segja að ég er mjög ánægður með öll nýju framboðin. Það var full ástæða til að fá nýtt líf í kosningabaráttuna. Ef fjóflokkurinn hefði verið einn í sjónvarpssal hefði maður þurft að horfa á sama þreytta liðið rífast. En nú skyndilega er fult af nýjum viðhorfum og lausnum bæði til hægri og vinstri.
Um 27% kjósenda ætla að kjósa ný framboð ef marka má skoðanakannanir. Það er auðvitað spark beint í andlitið á fjórflokknum. 5% reglan kemur hinsvegar í veg fyrir að þúsundir atkvæða þeim til handa breytist í þingmenn. Reglan er mikilvæg fyrir fjórflokkinn - enda samin af honum til að tryggja völd. En ég tek ofan fyrir þeim öllum sem ætla að kjósa annað en fjórflokkinn. Fjórflokkurinn á sök á hruni, ónýtum gjaldmiðli, okurvöxtum og glötuðum tækifærum. Ég skil þá vel sem hreinlega geta það ekki lengur. |
Myndirnar mínarEldri innlegg
July 2019
Slóð á straum |