Starfsmannafélag Auðarskóla hélt norður á Siglufjörð föstudaginn var. Um var að ræða skemmti- og menningarferð. Ferðin var öll hin skemmtilegasta og fróðlegasta.
Nú eru að nálgast 10 ár síðan við fluttum frá Siglufirði og á Selfoss. Á þessum árum hefur Siglfirðingum haldið áfram að fækka. Það hefur gerst jafnt og þétt og sér ekki fyrir endan á þeirri þróun. Þegar ég byrjaði sem skólastjóri 1996 voru 310 börn í Grunnskóla Siglufjarðar. Fyrir 10 árum voru þau 257. Í dag eru 225 börn í sameiginlegum grunnskóla Siglfirðinga og Ólafsfirðinga. Nýr sameiginlegur árgangur úr bæjunum báðum næsta haust mun aðeins telja 10 börn. Þetta eru ótrúlega fáar fæðingar í tæplega 2000 manna sveitarfélagi. Til samanburðar er meðalárgangur í Dalabyggð 9 börn. En þótt fólki fækki er atvinnustig gott. Afkoma Rammans góð og mjög vaxandi ferðamannastraumur. Mikil fjárfesting hefur átt sér stað í veitingahúsum og telja þau nú tuginn. Síldarminjasafnið fékk um 20.000 gesti síðasta sumar. Skemmtiferðaskip eru farin að leggjast við bryggju á sumrin og margt fleira hefur gerst. Vonandi fer skuggi fækkunar að leysast upp. Þetta er yndislegur bær með yndislegt og duglegt fólk. Heimsóknin var frábær.
0 Comments
Það eru tæp tvö ár síðan ég rakst á ættfæðiforit á internetinu. Vefsíðan er á slóðinni www.geni.com og er með íslenskri þýðingu kjólsi menn svo.
Geni er mjög öflugt ættfræðiforit, jafnvel þótt aðeins sé notuð fría útgáfan. Hægt er að vera með ógrynni af upplýsingum sem tengjast ættingjum lifandi sem látnum. T.d. hægt að geyma mikið magn af ljósmyndum og skjölum ýmiskonar, eins og skönnuðum fæðingarvottorðum og fl. og fl. sem hugsanlega hefur fylgt manneskjunni. Vegna þess að Geni er á netinu er auðvelt að tengjast öðrum netum eða búa til hópa sem smíða saman ættartré. Við vinnslu mynda er maður gjarn á að breyta bakgrunni þeirra. T.d. dekkja hann, matta, eða setja á hann mjúkt þokukennt yfirbragð þannig að fókusinn sé allur á tilefni myndarinnar. Dæmi um þetta er þegar maður tekur mynd af barni og útmáir skýrar línur í öllum bakgrunninum svo barnið sé skýrara og bjartara í forgrunni.
Þetta geri ég gjarnan sjálfur. Nú hef ég komist að því að þetta er stórhættulegt út frá minningarlegu gildi myndanna. Þegar eldri myndir eru skoðaðar - þá eru þær grandskoðaðar. Og sjá hvað leynist nú í þeim. Jú þarna má sjá fyrsta kertastjakan, bláu peysuna, kaffibollan hans afa og margt margt fleira sem vekur upp MINNINGAR. Þetta atriði þarf að hafa í huga við vinnslu mynda ef maður á annað borð vill að þær hafi fullt gildi minningarlega séð. Annar möguleiki er að geyma bara alltaf eintak af myndinni óunnri, sem sýnir allan bakgrunns skýran. |
Myndirnar mínarEldri innlegg
July 2019
Slóð á straum |