Jóna Ósk Pétursdóttir segir m.a. eftirarandi í pistli sínum á Smartlandi:
Jóna segir að neikvæðar tilfinningar tengist oft facebooknotkun. „Niðurstöður rannsókna hafa leitt í ljós að einn af hverjum þremur er óánægðari með líf sitt eftir að hafa farið inn á Facebook. Endalaus samanburður er m.a. talinn valda því. Þeir sem eru niðurdregnir og finnst allt ómögulegt ættu því ekki að skrá sig inn á Facebook. Því líklegt er að þar mæti manni hinn fullkomni heimur „vinanna“ og ógrynni mynda sem sýna hvað allt er skemmtilegt og fullkomið – eða hvað?“ Vinkona Jónu Óskar segist vera með svarta beltið á Facebook enda byrjar hún daginn þar og endar hann líka. „Sérfræðingar telja að fleiri „vinir“ auki líkurnar á afbrýðisemi og óanægju með eigið líf. Með fleiri „vinum“ er óhjákvæmilegt að sjá „fullkominn“ heim einhvers þeirra – öll draumafríin, öll afrekin, allar veislurnar og allt gamanið. Þegar fólk upplifir stöðugt að allir aðrir lifi meira spennandi lífi vekur það neikvæðar tilfinningar eins og einsemd, vonleysi og reiði. Við skulum alveg vera hreinskilin með það að flest okkar deila frekar góðu stundunum en þeim slæmu á Facebook. Maður sér yfirleitt ekki færslur þar sem fólk talar um hvað lífið sé erfitt, hvað það sé leiðinlegt í vinnunni eða hversu erfið og óþekk börnin séu. Facebook-heimurinn er svolítið sérstakur, það verður nú bara að segjast.“ En svo má spyrja sig hvort einhver hefði áhuga á að hanga á Facebook ef fólk sýndi þar sínar verstu hliðar, gráan hversdagsleikann og erfiðar aðstæður. „Þetta tól er nefnilega afþreying og bregður oft upp glansmynd af lífinu. En fyrir suma getur þetta verið streituvaldandi, brotið niður sjálfstraust og valdið óánægju. Facebook er samt bara einhvers konar annar heimur þar sem allir virðast lifa fullkomnu lífi – nema kannski maður sjálfur!“
0 Comments
Nú fyrir skömmu varð á vegi mínum gömul bloggsíða, sem Birna Björt notaði (allt of lítið) til að segja frá ferðum sínum í Braselíu. Þar var m.a. myndasafn frá ferð hennar um Amazon svæðið. Þetta var 2006. Lítið endilega á myndirnar !
Hér er slóðin: http://birnab.blog.is/album/Amazon/ Nú nýlega las ég frétt um það að kennslustofur standi í auknum mæli auðar í viðskiptaháskólum í Bandaríkjunum. Ásókn í MBA nám hefur minnkað verulega. Ástæður eru annarsvegar þær að námið er mjög dýr fjárfesting og hinsvegar að hægt er í auknum mæli að vera í fjarnámi ... sem einnig er ódýrara. Þriðja ástæðan er svo hugsanlega sú að vinnuveitendur eru ekki alveg á því að MBA námið sé eins svakalega gott eins og af er látið og ráði jafnvel fólk með annan bakgrunn. Nú er útsala á BNA námi í Bandaríkjunum.
Þessi þróun er merkileg. Upplýsingatæknin er að breyta háskólanámi áþreifanlega. Það er dýrt viðskiptanám sem lætur undan. Verður fyrir bragðið bæði ódýrara og auðveldara að sækja sér. Hér er slóðin á fréttina. Fyrir þá sem eiga erfitt með að borða fjallagrös eða drekka te og seiði grasanna bendi ég á eftirfaradi leið: Malið fjallagrösin í blandara eða matvinnsluvél og setjið duftið í töfluhylki. Slík hylki búin til úr grænmeti fást m.a. í Jurtaapotekinu og kosta ekki mikið. Með því að taka fjallagrös inn í hylkjum er hægt að neyta talsverðs magns með mat og við öll tækifæri...án þess að finna nokkurt bragð.
Ég er þessa dagana aðeins að lesa Chomsky, en hann hefur skrifað nokkuð síðustu áratugina um mál og samfélag. Eitt af því sem hann bendir á er að viðfangsefni margra fjölmiðla í dag er ekki fréttafluttningur og dagskrágerð í sjálfu sér ... heldur neytandinn sjálfur. Viðfangsefnið er að móta eða hafa áhrif á neytendann.
Ef einhver er að velta því fyrir sér afhverju ekki séu að hlaðast upp fleiri myndir á Flickr frá mér...þá er svarið að ég er að vinna að mikilli endurskipulagningu á allri flokkun þar.
Núnar eru í myndasafninu 1350 myndir og ég reikna með að þeim eigi eftir að fjölga jafnt og þétt næstu árin. Til að halda utan um skipulagið er ég að "tagga" allar myndir. Hef nú taggað um 400 stk.... svo enn er nokkuð í land. Töggun er merking á myndum eftir leitarorðum. Þegar töggun er lokið verður hægt að kalla fram myndir úr fjölmörgum flokkum. T.d. getur fjölskyldan smellt á sitt nafn; t.d. Sigga og þá koma allar myndir í safninu upp sem hún er á. Til nánari útskýringa gef ég hér upp slóðina að flokkunarkerfinu. Þið getið prufað að smella á einhvern flokk til gamans. En ég minni á að þessu verki er ekki lokið. Ég er enn að vinna bakvið tjöldin. Hér er slóðin: http://www.flickr.com/photos/guggaogloi/tags/ |
Myndirnar mínarEldri innlegg
July 2019
Slóð á straum |